kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég fagna að sjálfsögðu öllum vegaframkvæmdum. Það er ekkert nýtt að það sé verið í vegaframkvæmdum um allt land. Það var líka á síðasta ári og á árinu þar á undan. Það sem ég er bara að benda á er sú einfalda staðreynd að samkvæmt fjárlagafrumvarpinu — sem gildir, það trompar — eru viðbæturnar 7,6 milljarðar og það eru 7 milljarðar sem eru settir í samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Það er búið að lofa landsmönnum 18,3 milljörðum í þessum þremur málum sem ég taldi upp til uppbyggingar á landsbyggðinni. Þeir eru ekki að koma. Svigrúmið sem ríkisstjórnin hefur samkvæmt stöðugleikareglunni eru 28 milljónir. Það er ekki minnst einu orði á innviðafélag í fjárlögunum. Það er ekki ein króna að fara í innviðafélagið þar. Það er ekkert í hendi þar. Þess vegna spyr ég hv. þingmann, af því að ég veit að það slær í honum landsbyggðarhjarta: Deilir hann ekki þeim áhyggjum með mér að þetta verði ekki að veruleika?