kílómetragjald á ökutæki.
Frú forseti. Vissulega deili ég alltaf þeim áhyggjum að vegapeningar skili sér ekki í nauðsynleg verk. Mér finnst það bara ósköp eðlileg gagnrýni og við þurfum að halda framkvæmdarvaldinu við efnið í þeim efnum, að nægir peningar berist í þessi nauðsynlegu verk sem þarf að framkvæma. Áherslur á höfuðborgarsvæðinu eru vissulega miklar en ég hef hins vegar mikla trú á því innviðafélagi sem boðað hefur verið af hálfu stjórnvalda og að þar verði farið út í framkvæmdir sem verða dugandi fyrir land og þjóð um komandi ár. Þessi leið er, held ég að mati flestra, mjög fær. Við þekkjum hana úr Hvalfjarðargöngum sem var kannski sú leið sem opnaði augu flestra fyrir því að hægt væri að borga fyrir að stytta sér leið í landinu. Sú framkvæmd tókst einstaklega vel og er minnisvarði um það hvernig við getum farið í stórkostlegar vegaframkvæmdir á milli landshluta. Ég held að innviðafélagið muni sýna okkur kaflaskil í uppbyggingu samgangna á landinu á komandi árum og ég held að það væri vert að þingmenn sameinist um þá bjartsýni sem ríkir í brjóstum manna hvað varðar innviðafélagið. Ég hef fulla trú á því að það geti leyst stóru þættina í samgöngumálum á Íslandi inn í komandi ár.