kílómetragjald á ökutæki.
Frú forseti. Ég fagna að sjálfsögðu þátttöku fulltrúa stjórnarmeirihlutans í þessari umræðu. Ég hefði gjarnan viljað spjalla við þá fleiri. Þetta fer aðeins í mig, ég veit ekki alveg hvar ég á að byrja, frú forseti. Fyrst var það ræðan og ég var með fullt af spurningum út af henni. Svo komu andsvör og svör og þá fjölgaði spurningunum alveg helling. Ég hreinlega velti fyrir mér: Heyrði hv. þm. Sigmundur Ernir Rúnarsson ekki svörin sem hann fékk? Það eru fjárlögin sem gilda, ekki flottar fyrirsagnir eða draumórar, ekki einu sinni samgönguáætlun, eins mikilvæg og hún er. Það eru fjárlögin. Þar er ekkert innviðafélag og þar er heldur ekkert svigrúm. Þannig að ég ætla bara að vera alveg heiðarlegur. Fyrsta spurningin er: Hvernig ætlar hv. þingmaður að fara að þessu ef hann hefur ekki svigrúm til að fara þá leið sem hann er sjálfur að tala fyrir ásamt ríkisstjórninni í heild? Ég myndi skilja þetta ef ég gæti flett upp í fjármálaáætlun og séð það: Já, heyrðu, hérna er liðurinn, hér er stofnunin á félaginu og þetta eru þeir fjármunir sem verða settir inn í félagið. Það er ekkert þarna, hv. þingmaður.
Vegabætur um landið víða, Austurland — ég bara trúi ekki að hv. þingmaður hafi treyst sér til að byrja að tala um Austurland. Jú, við skulum vera sammála um það, ég og hv. þingmaður, að loksins grillir í alvörubrú yfir Sléttuá. En meira og minna allt annað í þessari nýlega kynntu áætlun eru fögur fyrirheit fyrir komandi ríkisstjórnir ef horft er á tímalínuna.
Ég ítreka hins vegar spurninguna svo að hún gleymist ekki: Hvernig ætlar hv. þingmaður að fara þessa leið sem hann er að tala fyrir þegar fjárlögin gera ekki ráð fyrir henni?