157. löggjafarþing — 45. fundur,  11. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[16:04]
Horfa

Sigmundur Ernir Rúnarsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hér takast á tveir þættir. Við erum að sýna ábyrg fjárlög. Við erum að beita okkur aðhaldi í þessum fjárlögum. Við getum ekki eytt um efni fram svo árum skiptir og þess vegna stefnum við á hallalaus fjárlög eftir örfá misseri. Þetta kallar á aðhald og því miður getum við ekki eytt öllum þeim peningum sem okkur langar í vegabætur á næstu árum, en við ætlum hins vegar að reyna að spyrna við fótum. Við munum spyrna við fótum í þessum efnum. Við munum auka framlög til vegamála á komandi árum, hvort heldur er til viðhalds, heilsársþjónustu eða nýframkvæmda og það er stefnan. Stefnan er skýr: Við ætlum að fara í auknar samgöngubætur.