157. löggjafarþing — 45. fundur,  11. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[16:05]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Þaulæft svar. Hv. þingmaður hefur mikla reynslu í að svara fyrir sig. En svaraði hann spurningunni sem ég kom með, frú forseti? Ekki einu sinni nálægt því, komst ekki nálægt því. Í staðinn fyrir að dæla fleiri spurningum á hv. þingmann, ég var búinn að skrifa niður nokkrar, þá ætla ég að gefa hv. þingmanni annað tækifæri til að koma hér upp og útskýra þannig að ég skilji hvernig hann ætlar ásamt hv. félögum sínum að koma þessu í framkvæmd þegar fjárlögin gera ekki ráð fyrir því. Þú getur skrifað hvaða grein sem er, jafnvel í DV. Það hefur engin áhrif á fjárlögin.