kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegur forseti. Ég þakka öðru sinni hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni fyrir hans andsvar, sem var ákaft og fullt af andagift eins og hann segir sjálfur. Við erum að beita okkur aðhaldi í ríkisfjármálum. Það er eitt. Við þurfum hins vegar að koma til móts við fjárhagslegar þarfir víða í samfélaginu, t.d. í velferðarþjónustunni. Hvað samgöngurnar varðar höfum við boðað innviðafélag og það mun á næstu misserum taka á stórvægilegum þáttum í nauðsynlegum samgöngubótum víða um land. Innviðafélag af þessu tagi hugnast mér ákaflega vel og við þekkjum módel af því tagi frá löndunum í kringum okkur. Þetta fyrirbæri sem við köllum innviðafélagið mun að mati þess sem hér stendur geta ráðist í mjög viðamiklar framkvæmdir með skjótvirkum hætti, landi og lýð til heilla.