157. löggjafarþing — 45. fundur,  11. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[16:07]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Virðulegur forseti. Ég hef nú hlýtt á þessa umræðu um nokkurt skeið og var farinn að halda að ég væri staddur í einhverri umræðu um óskhyggjuframtíðarlandið en ekki um þetta mál sem fjallar um kerfisbreytingu á innheimtu á tekjum af akstri á vegum.

Mig langar að byrja þetta mál á því að fara aðeins í þá sögu að menn hafa um langt árabil haft áhyggjur af því að tekjur af núverandi kerfi myndu minnka þegar hreinorkubílar, rafmagnsbílar, kæmu hér á göturnar. Ég man eftir samgönguráðherra, líklega 2010 frekar en 2011, sem hélt því fram að það væri stutt í það að menn væru komnir með kubb í hvern bíl og við myndum bara greiða mánaðarlega fyrir notkun á tilteknum vegum sem væri mismunandi kostnaður og þetta yrði bara innan fárra ára. Þetta kerfi er nú ekki komið enn, einhverjum 15 árum síðar. Þó er verið að nota sambærilegt kerfi á stóra bíla í Evrópu og það er líka verið að nota svona kerfi í einu ríki í Bandaríkjunum. Það er hins vegar fullt af göllum við þetta kerfi, bæði í Evrópu og Bandaríkjunum, og þess vegna hefur enginn árætt að fara í þessa vegferð.

Hins vegar hafa öll lönd, alla vega í hinum vestræna heimi, verið að skoða með hvaða hætti menn gætu fært sig frá því að vera með gjaldtöku á bensín og dísil yfir í einhvers konar notkunargjöld. Þar höfum við Íslendingar ekki verið eftirbátar. Og af hverju er það? Jú, það er vegna þess annars vegar, eins og hefur margoft komið fram í þessari umræðu, að þegar hreinorkubílarnir komu hér inn, algerlega gjaldfrjálsir í raun og veru, sérstaklega rafmagnsbílarnir, eða þeir sem ekki notuðu neitt bensín og dísil, þá borguðu þeir ekki neitt fyrir notkun á vegunum sem var hugsað að væri í lagi að væri hvati til að byrja með en síðan þegar þeim fjölgaði þá var þetta auðvitað orðinn baggi. En það var fleira sem gerðist. Á sama tíma var þróunin í bensínhreyflinum og dísilhreyflinum með þeim hætti að bílar urðu sífellt sparneytnari og borguðu þar af leiðandi miklu minna. Það er langstærsti þátturinn í lækkun á gjaldinu sem er alveg rétt að var upp úr aldamótum yfir einhverjum 2%, 2,2, 2,4%, en var komið núna síðast þegar ég vissi niður í um 1,1% fyrir nokkrum árum. Leiðin sem ríkið hefði til þess, bæði núna og reyndar þá um næstu framtíð, til að viðhalda þessu gjaldi væri að hækka stöðugt álögur á bensín og dísil til að viðhalda tekjunum.

Nú erum við komin með líklega tveggja ára reynslu af því að rukka þessi notkunargjöld, kílómetragjöld af rafmagnsbílum. Það gekk auðvitað bara býsna vel, auðvitað einhverjir erfiðleikar í upphafi en hefur sífellt farið batnandi og ég hef reynslu af því sjálfur persónulega að þetta er ekki íþyngjandi vinna. Auðvitað er umtalsvert meira magn að fá inn alla aðra bíla, sem eru umtalsvert fleiri, en það er samt sami mekanisminn, sama kerfið. Skatturinn er að þessu hvort eð er. Þetta er ekki svo íþyngjandi fyrir einstaklinga.

En það er fleira sem gerir það að verkum að við þurfum að skipta um þetta kerfi. Það er ekki bara þetta og þessi viðvarandi þörf þá til að hækka bensín- og dísilgjöldin endalaust á næstu árum ef við ætlum að viðhalda tekjunum eða ná þeim upp í 1,7% sem hefur verið markmið ríkisins, og þegar ég segi ríkisins þá er það óháð stjórnvöldum eða ríkisstjórnum, sem er þá talið eðlilegt til að það gjald renni til vegagerðar. Það eru fleiri þættir sem gera það að verkum að það þarf að skipta um kerfi. Núverandi kerfi er nefnilega ekki gott. Það eitt og sér er ósanngjarnt. Það að viðhalda því er að viðhalda ósanngjarnri gjaldtöku. Við höfum til að mynda — og það er eitt af því sem gerist þegar við annaðhvort leggjum á of há gjöld eða setjum mikla hvata inn, þá eltir markaðurinn mjög hratt. Það eru engin sérstök gjöld, olíugjöld, á aftanívagna, tengivagna. Fyrir vikið hefur þeim fjölgað gríðarlega mikið á Íslandi á liðnum árum í flutningum. Þeir borga ekkert í dag. Þeir eru hættulegir í umferðinni, þeir eru umferðarógn og ástæðan fyrir því að þeim hefur fjölgað svona mikið en menn hafa ekki keypt sér stærri bíla eða fleiri bíla er að þetta er ekki skattur á vagnana. Þessu þarf að breyta. Þetta er ekki góður hvati, að fjölga tækjum í umferðinni sem eru ekki eins örugg og bílar. Það þarf. Það er ekkert sérstakt olíugjald á langferðabíla, rútur. Hvaða sanngirni er fólgin í því? Af hverju er það ekki? Það þarf að laga það. Og hvaða sanngirni er fólgin í því, þegar það er búið að rannsaka það, sérstaklega á Nýja-Sjálandi, og segja að allir bílar slíti vegum sirka jafn mikið upp að þremur og hálfu tonni og þess vegna er það einn gjaldflokkur í þessu frumvarpi, að þeir sem eiga mjög sparneytna bíla borgi miklu minna fyrir notkun á veginum en þeir sem eiga bíla sem eyða meiru? Hverjir eiga bílana sem eyða meiru, eldri bílana? Jú, það er gjarnan fólk úti á landi. Hvaða sanngirni er fólgin í því að viðhalda þessari ósanngjörnu gjaldtöku?

Þannig að það eru nokkur rök fyrir því að það þurfi að skipta um kerfi og við höfum verið að undirbúa það á undanförnum árum og okkur hefur gengið það ótrúlega vel, það vel að mjög margar aðrar þjóðir hafa horft á okkur öfundaraugum og spurt: Hvernig er þetta hægt? Auðvitað er það hægt vegna þess að það hefur verið öflugt fólk að störfum í því á undanförnum árum að undirbúa það. Það er einfaldlega þannig. Við yrðum, já, það er rétt, fyrsta landið í heiminum sem tæki skrefið til fulls. Það er eftirsóknarvert ef það virkar og ég held að það sé margt sem bendir til þess að það geti virkað.

Ef við förum í nefndarálit meiri hlutans, því að ég sé að ég mun ekki hafa allan þann tíma sem ég hefði þurft til að fjalla um þetta, þá er bent hér mjög fljótlega á eftirlit með eldsneytisverði. Ef ég man rétt á bensín að lækka um 100 kr. á dælunni 1. janúar og dísill um sirka 90 kr. og það er mjög mikilvægt að olíufélögin skili þessari lækkun. Er freistandi að skilja eftir tvær eða þrjár krónur? Já, það er það. Þess vegna er mjög mikilvægt að það eftirlit sem þar þarf við — og það eru neytendur fyrst og fremst, en það þarf líka að vera opinbert eftirlit — sé eins öflugt og hægt er. Það er mikilvægt.

Aðeins síðar í nefndarálitinu, og það hefur verið mikil umræða um það undir þessari umræðu, er talað um að tekjur af kílómetragjaldi renni til uppbyggingar á vegakerfinu. Auðvitað er það þannig þegar við erum komin með notkunargjöld að það er algjörlega nauðsynlegt að þau renni algjörlega til vegamála, ekki króna í eitthvað annað, sömu rök og þegar við lögðum á varaflugvallargjald, það varð að fara til uppbyggingar og þótt það séu ekki markaðar tekjur þá verður það að vera sama tala. Það verður að vera trúverðugleiki á bak við þessa skattlagningu og menn verða að hafa skilning á því, til þess að viðhalda greiðsluvilja, að hver einasta króna sem þeir leggja í varaflugvallargjald í þessu tilviki, eða núna kílómetragjald, skili sér 100%.

En ríkisstjórnin og meiri hlutinn getur aldrei á sér setið annað en að reyna að teikna upp einhverja framtíð og einhverja sögu sem er hins vegar enginn veruleiki. Hér er t.d. fjallað um að þessi breyting núna sé mjög mikilvæg til þess að auka framlög til samgöngumála, til að hefja kraftmiklar framkvæmdir um allt land. Meiri hlutinn undirstrikar að nýtt tekjuöflunarkerfi af ökutækjum sé lykilþáttur í framangreindum áformum. Auðvitað er það ekki, en það er hins vegar mjög mikilvægt þegar kerfið verður að það fari hver einasta króna þarna yfir.

Ef við horfum aðeins á fjárframlög til vegamála þá er í fjárlögum hækkun upp á 7,6 milljarða. Hvað er að fara í fjárlögum í ár til vegamála? Jú, það eru, held ég, 35,5 milljarðar og aukningin er síðan upp í 43 sem eru þessir 7,6. Hins vegar ef við förum og skoðum samgönguáætlun þá eru á næstu árum að fara milli 34 og 35 milljarðar á hverju ári í framkvæmdir, þann bókhaldslið í vegamálum, sem eru framkvæmdir og viðhald, 35 milljarðar. Þessi aukning upp á 7 milljarða er að fara í borgarlínuna eða Betri samgöngur sem er þá uppgjöf af hálfu núverandi stjórnvalda að fara sömu leið með Betri samgöngur og var hugsuð í innviðafélaginu þar sem menn eiga að greiða viðbótargjald fyrir notkunina; Sundabraut, Ölfusárbrú, Hornafjarðarfljót eða hvað það er, sem sagt aukningin sem ríkisstjórnarflokkarnir sögðu í sumar þegar veiðigjöldin voru hækkuð um 7,5 milljarða að ætti að fara í vegi úti á landi er að fara í Betri samgöngur á höfuðborgarsvæðinu. Vörugjöldin sem verið er að leggja á upp á 7,5 milljarða eiga líka að fara í vegaframkvæmdir og þessir 3,3 sem þetta frumvarp á að skila eiga líka að fara í vegaframkvæmdir. Þetta eru 18,3 milljarðar. Aukningin í fjárlögum er 7,6 og þessir 7,6 eru að fara í Betri samgöngur, ekki vegi úti á landi. Þessi flugeldasýning í kringum samgönguáætlun og að ræsa vélarnar og allt þetta, mér finnst þetta vera hjóm eitt þegar verkin sýna annað, þegar þú ferð að rýna í tölurnar.

Við í Framsókn höfum lagt áherslu á við þessar breytingar núna — og þekkjum alveg söguna og erum auðvitað ekkert að hverfa frá og ég er ekki að hverfa frá þeirri skoðun minni að ég held að þetta sé mikilvægt og gott skref — að það þurfi að lagfæra ýmislegt í frumvarpinu. Hér hefur verið talsvert rætt um þessa tengivagna og ég nefndi þá hérna áðan. Meiri hlutinn ætlar að fara fram með þá tillögu að þeir hækki á þremur árum, 60%, 80% og 100%. Við vorum búin að reikna það út í fyrra að ef gjaldið yrði 70% þá yrði það nokkurn veginn hlutlaust gagnvart flutningskostnaði, aukning í flutningi á móti lækkun á eldsneytisverðinu. Betri hugmynd væri þar af leiðandi af meiri hlutanum, að okkar mati, að festa 70% bara í sessi næstu fimm ár á meðan menn eru að taka út hvernig kerfið virkar og endurskoða og vera þá hlutlaus gagnvart flutningskostnaði úti á landi, ellegar þarf þá á móti að hækka flutningsjöfnunarsjóð og gera einhverjar aðrar mótvægisaðgerðir til að þessi aðgerð sé ekki að bæta við þann gríðarlega kostnað sem felst í flutningum út á land og eins flutningum frá framleiðslufyrirtækjum á landsbyggðinni til höfuðborgarsvæðisins eða til hafna. Þetta væri gríðarlega mikilvæg breyting.

Meiri hlutinn hefur ekki hlustað á það að mótorhjól séu að greiða óþarflega hátt kílómetragjald. Það er hærra en var í frumvarpinu í fyrra. Meiri hlutinn vill heldur ekki hlusta á það að fornbílar eigi að vera undanþegnir þessu gjaldi. Þá kem ég að kannski tvennu, eða einu sem er jákvætt, að meiri hlutinn hefur hlustað á okkur í Framsókn og í minni hlutanum og umsagnir um að tæki til landbúnaðar, traktorar, verði undanþegin þessu.

Það er líka jákvætt þegar við förum að fjalla um bílaleigurnar, ég ætla aðeins að gera það á nokkrum mínútum sem ég hef, að þetta val um daggjald eða kílómetragjald eða fastagjald, að það sé aukinn sveigjanleiki með að þú sért bara bundinn í 15 daga en ekki 30, ef þú ákveður t.d. að hafa daggjald sértu bara bundinn af því næstu 15 daga af því að það getur auðvitað margt breyst. En það sem meiri hlutinn er að gera gagnvart bílaleigunum er að þessi breyting er umtalsverð, kílómetragjaldið, og íþyngjandi og það hlýtur að koma til álita af hálfu meiri hlutans að fresta gildistökunni er varðar bílaleigur eða að koma inn með sama hætti og gert er með rútufyrirtækin sem á að trappa upp á nokkrum árum. Það hlýtur að vera sanngjörn krafa, sanngjörn tillaga sem við höfum verið að tala fyrir hér.

En það sem er svo slæmt í heildaráformum ríkisstjórnarinnar gagnvart bílaleigunum er að bara þetta er auðvitað flókið, þú þarft að vera búinn að endurnýja tölvukerfi og það eru 15 dagar í þetta. Ég skil t.d. ekki enn af hverju meiri hlutinn og forseti þingsins sem setur dagskrá í samtali og samstarfi við stjórnarflokkana um að koma að stjórnarmálum — af hverju í ósköpunum þetta mál var ekki klárað í nóvember, ég skil það ekki, til að senda skilaboð inn á þessa markaði um að menn hefðu lengri tíma til að undirbúa sig. Ég skil það ekki, veit ekki enn nákvæmlega hvernig það endar.

En á sama tíma ákveður sama ríkisstjórn, sami meiri hluti, að hækka vörugjöld um 7,6 milljarða sem leggjast alveg sérstaklega á bílaleigurnar líka, aftur. Ekki nóg með það heldur er þriðja aðgerðin að það á að hætta með undanþáguna, sem sagt virðisaukalaust gjald á hreinorkubíla, sem þýðir að bílaleigur, sem selja bíla sína nokkuð hratt — þurfa að endurnýja — þurfa að greiða vaskinn ofan á af þeim bílum sem þær keyptu á þessu ári eða næsta ári en munu selja á árinu 2026. Það eru sem sagt þrjú atriði sem þessi meiri hluti, þessi ríkisstjórn, ætlar að nota til að sækja sér tekjur en munu sennilega hafa þær afleiðingar að verð á bílaleigubílum, sem er hátt á Íslandi, gríðarlega hátt, og bílarnir tæplega 30.000, ef ég man rétt, mun hækka um 20–30%, sem hefur augljóslega áhrif á eftirspurn. Það getur t.d. þýtt það að ferðamaður sem kemur til Keflavíkur hætti að keyra þegar hann er kominn til Víkur og fari ekki austar. Það getur þýtt það. Það getur líka þýtt að menn taki færri daga. Þetta eru of margar íþyngjandi breytingar í einu. Það er það sem ég er að reyna að segja við meiri hlutann með þessu tali hérna. Þess vegna er mikilvægt að hlusta á það að fresta gildistöku gagnvart bílaleigunum eða trappa þær inn með sama hætti og tillagan hefur verið varðandi rúturnar.

En það eru nokkur mikilvæg atriði. Ef engin af þessum tillögum okkar í Framsókn verður að veruleika þá getum við auðvitað ekki stutt þetta mál. Það liggur í augum uppi. Ef það hins vegar, og meiri hlutinn ætlar bara að keyra þetta í gegn — það er rétt sem hv. þm. Stefán Vagn Stefánsson, fulltrúi okkar í fjárlaganefnd, kom hérna inn á að svigrúm meiri hlutans til breytinga vegna stöðugleikareglunnar er komið niður í 28 milljónir. Það er ekki mikið svigrúm. Þú stofnar t.d. ekki innviðafélag með þeirri innspýtingu. Það er ekki mikið svigrúm, þannig að það þarf að gera þá einhverjar frekari breytingar á fjárlagafrumvarpinu ef meiri hlutinn er tilbúinn að hlusta á þetta. Ég hvet meiri hlutann til þess.

Það er ekki gott að vera að samþykkja svona veigamiklar kerfisbreytingar sem taka gildi 15 dögum síðar. Það er aldrei gott, hvort sem það hefur verið gert áður. Það var ekki gott þá heldur. Það gerir það ekki betra að gera þær núna.

Þessar þrjár íþyngjandi breytingar gagnvart bílaleigunum gera það að verkum að meiri hlutinn hlýtur að horfa til þess að þarna þurfi að skoða að gera einhverjar breytingar.

En ef allt um þrýtur og málið verður engu að síður samþykkt og verður að veruleika og tekur gildi 1. janúar þá vil ég nota lokaorð mín til að hvetja ríkisstjórnina til að gera allt sem hún mögulega getur til að tryggja það að eldsneytisverðið sem á að lækka um 100 kr. og 90 kr. um áramótin verði að veruleika og það verði ekki einhverjar krónur eftir hjá olíufélögunum. — Ég hef lokið máli mínu, frú forseti.