157. löggjafarþing — 45. fundur,  11. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[16:27]
Horfa

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Pawel Bartoszek) (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Sigurði Inga Jóhannssyni kærlega fyrir hans ræðu og hann þekkir málið prýðilega eins og heyra mátti á hans málflutningi. Mig langar að bregðast við nokkrum atriðum sem þar komu fram og koma með nokkrar skýringar. Varðandi fornbílana er það auðvitað þannig að fornbílar í dag greiða bensíngjöld. Þeir greiða auðvitað þau gjöld sem eru á dælu og þess vegna er ekkert endilega rökrétt, í þeim tilfellum þar sem um er að ræða bíla sem eru sannarlega með mæli og hægt að meta akstur á þeim, að þeir séu undanþegnir. Þá værum við búin að búa til undanþágu sem ekki er til staðar í dag. Kílómetragjaldið er auðvitað gjald á kílómetra og þessir bílar eru ekki keyrðir mikið. Segjum að einhver fornbíll sé keyrður 100 km á ári. Þá er gjaldið af því 670 kr., þannig að ég myndi ekki segja að við værum að ráðast að þessari mjög svo áhugaverðu iðju sem margir hafa tekið sér fyrir hendur.

Varðandi spurninguna um afsláttinn fyrir bílaleigur þá langaði mig kannski að árétta og er nauðsynlegt að komi fram að þó svo að tekjuaukinn með þeim frumvörpum sem lögð eru fram, sem snúa bæði að kílómetragjaldinu og olíugjaldinu, sé 3,3 milljarðar þá velta frumvörpin sem slík talsvert hærri upphæðum, þ.e. í kringum 35 milljörðum. Afslættir t.d. af daggjaldi, það er eitthvað sem ég skoðaði, ég skoðaði hvað myndi gerast ef við myndum veita 25% afslátt af gjaldinu fyrstu fjóra mánuði ársins og þá var stærðargráðan í kringum 600 milljónir. Þannig að ef við myndum t.d. fara þá leið sem bílaleigurnar hafa óskað eftir, að veita 35% afslátt af öllum gjöldum, af kílómetragjaldi fyrsta árið, hleypur sú tala á milljörðum. Það væri í rauninni dýrari aðgerð en að fresta gildistöku um ár, svo ég bara skýri út hvers vegna það er ekki auðsótt því þá erum við auðvitað að missa olíugjöldin á dælu (Forseti hringir.) en fáum ekkert annað í staðinn hjá aðilum sem í dag greiða þessi gjöld.