kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegur forseti. Ég geri mér grein fyrir því að þetta kostar fjármuni því að ef ég man rétt þá er það fimmti hver kílómetri, 20% af öllum eknum kílómetrum í landinu, sem er keyrður á bílaleigubílum. Þetta er þannig umtalsverður og stór þáttur í annars vegar notkuninni á vegunum og hins vegar slitinu á vegunum og er þar af leiðandi að einhverju leyti ástæða þess að við þurfum að gera betur í uppbyggingunni. Þar sem áður var lítil umferð og létt umferð að stærstu leyti hefur umferðin auðvitað þyngst gríðarlega með tilkomu ferðaþjónustunnar. Það er ekkert skrýtið að hún skili þar af leiðandi tekjum. Það hefur reyndar líka gerst að bílar hafa stækkað sem eru að þjónusta greinar t.d. í landbúnaði og í flutningum og þess vegna þurfa vegirnir að vera sterkari og betri en þeir voru fyrir 10, 20 eða 30 árum. Það er aðkallandi og ég geri mér alveg grein fyrir því. Það er þess vegna sem ég hef áhyggjur af því að meiri hlutinn sé í vanda staddur þegar hann er búinn að eyða öllu svigrúmi í fjárlögunum, öllu. Ef það er rétt að stöðugleikareglan skilji núna eftir 28 milljónir — 20, 30 milljónir eru ekki miklar upphæðir í þessu stóra samhengi, af 1.600 milljarða kr. fjárlögum — þá skil ég að meiri hlutinn sé í vanda. En ég bendi á að það er ekki bara þessi breyting á kílómetragjaldinu sem ferðaþjónustan og bílaleigurnar hafa áhyggjur af heldur leggst ofan á þessi verulega hækkun á vörugjöldum sem mun verða íþyngjandi, sérstaklega fyrir bílaleigurnar, og síðan þessi breyting á undanþágunni vegna virðisaukaskatts sem leggst einnig ofan á á sama tíma. Þetta eru rök mín fyrir því ákalli til meiri hlutans að það þurfi að skoða þetta vegna þess að þetta er svo mikilvægur þáttur í ferðaþjónustunni hringinn í kringum landið. Við megum ekki gera þau mistök núna að það hafi áhrif á fólkið hringinn í kringum landið.