kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir svarið. Ég vil taka fram, vegna ýmissa hugmynda sem hann nefndi hér, að framsögumaður hefur auðvitað í sinni nefndarvinnu reynt mikið til að koma til móts við þær og auka stuðning við frumvarpið en því miður bar það ekki þann árangur að það yrðu kannski sex á nefndarálitinu en ekki fimm. En við sjáum hvað getur gerst.
Mig langar kannski aðeins að fá nánari skýringu á einu. Mér fannst örlítið gæta mótsagna í málflutningi hv. þingmanns þar sem hann annars vegar talaði með þeim hætti að það væri vandamál í kerfinu í dag að tengivagnar borguðu í rauninni ekki olíugjald og þeir væru hættulegir, en síðan leggur hann til að varanleg „niðurgreiðsla“ á þeim eigi að vera meiri en lagt er til í frumvarpinu, að hún eigi að vera 70% til lengdar. Ég er að velta fyrir mér hvernig þessi tvö sjónarmið þingmannsins parist saman.