157. löggjafarþing — 45. fundur,  11. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[16:33]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Þau gera það, ég talaði um t.d. til fimm ára og að síðan yrðu breytingar boðaðar. Ástæðan fyrir því að ég segi fimm ár er sú að á síðustu árum hefur vögnunum, vegna þess að þeir greiða ekkert sérstakt gjald, fjölgað gríðarlega mikið. Það er ekki hægt að ætlast til þess að á einu ári eða tveimur verði þeim öllum skipt út og það verði komnir aðrir bílar. Það tekur lengri tíma fyrir fyrirtækin að endurnýja flotann og aðlaga sig að breyttu kerfi, sem menn munu gera. Menn munu skoða hverjir eru hagkvæmustu bílarnir á tiltekinni leið miðað við nýtt kílómetragjald og breytta tíma og ef þeir vita að eftir fimm ár verði breyting á tengivögnunum þá munu þeir horfa til þess að eyða þeim þegar það er hægt. Þeir verða þó alltaf að einhverju leyti til staðar, einfaldlega vegna þess að það getur bara verið kostur. En við munum sjá við þessa breytingu að menn munu aðlaga sig að nýju kerfi og finna þá flutningabíla sem henta hverri leið fyrir sig miðað við gjaldtökuna. En það tekur auðvitað tíma. Fyrirtækin þurfa líka að geta staðið undir þessari fjárfestingu. Ég var að leggja til fimm ár með þeirri yfirlýsingu að að þeim tíma liðnum myndu hlutirnir breytast, menn hefðu bara næstu fimm ár til að aðlaga sig að þessu. Menn gætu svo tekið nýja ákvörðun eftir fjögur ár og sagt: Þetta þarf aðeins lengri tíma. Ég veit það ekki, það verður bara að koma í ljós. Ég er bara að leggja til einhverja leið til þess að tryggja að flutningskostnaður út um land hækki ekki.

Og af því að ríkisstjórnin leitar logandi ljósi að fé og þessar 28 milljónir sem eftir eru af stöðugleikareglunni eru ekki mikil upphæð, þá væri það þannig til að mynda, með því að fara þá leið að setja strax 70% á flutningavagnana, að þeir myndu borga heldur meira á næsta ári, af því að það eru bara 60%. Þá gæti upphæðin kannski farið eitthvað aðeins yfir 30 milljónir og væri þá það sem eftir er af svigrúminu í stöðugleikareglunni. En það jákvæða við þá breytingu væri að það hefði engin áhrif á flutningskostnaðinn, væri u.þ.b. á pari.