157. löggjafarþing — 45. fundur,  11. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[16:35]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M):

Frú forseti. Ég var búinn að ákveða nokkurn veginn í huga mér hvað ég ætlaði að taka fyrir í þessari stuttu ræðu en eftir að hafa hlustað á skoðanaskipti þingmanna í þingsalnum núna þá get ég ekki alveg sleppt hendinni þar sem þau voru stödd hér áðan. Í ræðu hv. þm. Sigmundar Ernis Rúnarssonar kom m.a. fram að það — ég vek athygli frú forseta á því að þetta er ekki bein tilvitnun, þetta er svona meira efnisleg tilvitnun — ætti ekki að þurfa að koma bílaleigunum svona á óvart, þetta væri ekki alveg óvænt því að þær hefðu átt að geta undirbúið sig og hv. þingmaður nefndi meira að segja tölurnar í 4–5 ár. Mér þykir sárt að vera hér að pönkast, frú forseti, í hv. þingmanni, sem ég veit vel að er með landsbyggðarhjarta í grunninn en auðvitað veit hv. þingmaður að þetta er þvæla.

Ég ætla aðeins að grípa niður í umsögn frá Bílaleigu Akureyrar þar sem einmitt þessi fullyrðing er ávörpuð, með leyfi forseta:

„Tal um fyrirsjáanleika þar sem umrætt gjald hafi þegar verið komið til umræðu fyrr á árinu er marklaust því við getum ekki kynnt eða upplýst viðskiptavini okkar um neitt fyrr en endanleg útfærsla liggur fyrir og hefur verið samþykkt á Alþingi.“

Það er búið að svara hv. þingmanni, áður en fullyrðingin kom meira að segja. Áfram, með leyfi forseta:

„Þýskur ferðaheildsali orðaði þetta mjög „röggsamlega“ í mín eyru: „Ef stjórnvöld á Íslandi kjósa að verðleggja landið ofar öllum öðrum þá er það þeirra val, en reynið ekki að rukka okkur fyrr en þið hafið gefið okkur a.m.k. 12 mánuði til að kynna fyrir okkar viðskiptavinum. Við samþykkjum enga eftiráreikninga.““

Og enn, frú forseti, eru þingmenn hér að ganga fram fyrir skjöldu fyrir frumvarp sem ég hygg meira að segja að margir þeirra hafi ekkert verið allt of hrifnir af áður en þeir lentu ríkisstjórnarmegin borðs, til að reyna að verja þetta og ég er með fullt af svona umsögnum, og allir þingmenn, þar sem hrópað er eftir þessu. Er tekið tillit til þess, frú forseti? Nei, það er ekki gert.

Allt þetta mikla tal um lækkun á olíugjaldinu, sem ég er ekki í nokkrum minnsta vafa um að muni skila sér á fyrstu dögunum — en meira að segja hv. þm. Sigmundi Erni Rúnarssyni tókst að koma inn á það líka í sinni ræðu áðan þegar hann orðaði það eitthvað á þá leið að það væri uggur í hans brjósti. Það var ágætlega orðað. Ég hugsa að það sé uggur í brjósti flestra landsmanna gagnvart þessu máli og sennilega hjá langflestum talsvert meira en uggur, hreinlega vissa um það að olíugjöldin muni ekki rísa undir þeirri ábyrgð að freistast ekki til að smáhækka svo olíuverðið líka. Og þrátt fyrir umræðu um lækkun á olíugjaldi þá er hún í raun, frú forseti, öll í því skjóli að það er búið að stórhækka kolefnisgjöld sem undirbúning í því að geta sagst vera að lækka olíugjald. Nú heitir þetta bara annað, en allt heitir þetta einu nafni þó, frú forseti, þetta heita skattar.

Frasarnir sem ég kom aðeins inn á áðan eru að verða svolítið þreytandi því það virðist vera aðalverkefni þessarar ríkisstjórnar að finna alltaf ný nöfn og ný slagorð og eitthvað sem hentar TikTok og Facebook og öllum þessum miðlum. „Skoðum verkin“ er einn af þessum frösum. Já, frú forseti. Við skulum gera það. Við skulum skoða verkin. Það er búið að kynna samgönguáætlun. Ég hvet alla til að skoða þau verk sem núverandi ríkisstjórn — núverandi, ekki loforð til handa komandi ríkisstjórnum heldur þau verk sem núverandi ríkisstjórn hyggst ráðast í á Austurlandi, skoðum verkin í því samhengi. Við getum svo tekið á eftir frasann:„Ræsum vélarnar“.