157. löggjafarþing — 45. fundur,  11. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[16:41]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni fyrir prýðisræðu eins og hans er von og vísa, sérstaklega kannski í þessum geira sem snýr að hans sérþekkingu. Ég hef sjálfur flutt eina ræðu í þessu máli og hef velt fyrir mér með ákveðin fordæmi, hvort hv. þingmaður tengi við gjöld á skemmtiferðaskip og það sem gerðist þegar þau gjöld voru sett á, upp í 2.500 kr., og hvað varð um komu skemmtiferðaskipa til hinna ýmsu sveitarfélaga um land allt og hvort þetta kílómetragjald og þessar álögur á ferðaþjónustuna muni mögulega hafa svipuð áhrif og sá skattur hafði á þau skip sem hefur raungerst. Það sem hefur gerst er að skipakomum hefur fækkað gríðarlega með tilheyrandi tekjumissi fyrir mörg samfélög úti á landi, auðvitað í Reykjavík líka, sem fá þessa innspýtingu, sérstaklega yfir sumartímann að sjálfsögðu þegar það er gott í sjóinn. En mig langar að spyrja hvort hv. þingmaður telji að þessir skattar á ferðaþjónustuna hafi svipuð áhrif og á skemmtiferðaskipin í höfnum landsins.

Mig langar líka að spyrja hvernig hv. þingmaður haldi að heildarskattspor landsins fyrir og eftir aðgerðina verði. Við getum mælt heildarskattbyrði núna. Svo kemur kílómetragjald sem á að skila einhverju, það skilar einhverju í lokuðu kerfi en heildarskattsporið — hvernig heldur hv. þingmaður að það verði miðað við það sem það er í dag, ef þetta gengur eftir?