kílómetragjald á ökutæki.
Frú forseti. Ég þakka fyrir þessar spurningar frá hv. þm. Jóni Pétri Zimsen. Fyrst varðandi skipin og hvort það séu mögulega svipuð áhrif. Það er ekki nokkur vafi í mínum huga, hv. þingmaður, og ég hef ítrekað bent á það. Ég var í þriðju ræðu minni rétt áðan og ég er búinn að fara í nokkur andsvör, m.a. við fulltrúa meiri hlutans, þar sem ég hef verið að benda á nákvæmlega þetta. Af hverju erum við ófær um að læra af mistökum okkar hér? Það liggur fyrir og þeir sem stóðu fyrir hækkun innviðagjaldanna, það var ásetningur þeirra á sínum tíma, hafa allir gengist við því að hafa gert mistök og síðan hefur vegferðin snúist um að reyna að vinda ofan af því. Það voru kynntar áætlanir um að fara niður í 2.000 kr., úr 2.500 kr. Sú umræða hafði auðvitað sáralítil áhrif og smitaðist ekkert út í viðskiptalífið. Þá var ákveðið að fara niður í 1.600 kall, sem er vissulega betra en 2.500 kall, en skaðinn fyrir næsta ár er skeður og næstu tvö árin líklega.
Varðandi hina spurninguna frá hv. þingmanni, sem varðar heildarskattspor, þá segir bara hér í umsögn Bílaleigu Akureyrar, með leyfi forseta:
„Það er okkar mat að ofangreind hækkun mun ekki skila ríkissjóði ætluðum 17 milljörðum og raunar er það okkar mat að tekjurnar muni ekki einu sinni ná þeim 10 milljörðum sem þær eru í dag.“
Það er því ekki bara að tekjuaukningin muni ekki ganga eftir heldur er jafnvel verið að spá því að það gæti dregið úr. Ég hef ekki tíma, frú forseti, en ég hefði gjarnan viljað gefa aðeins ítarlegra svar. Ég næ því kannski í seinna andsvari.