kílómetragjald á ökutæki.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni fyrir ágætissvar við mínu andsvari. Mig langar að halda mig áfram við sérfræðiþekkingu hv. þingmanns. Það er talað um að bílaleigur þurfi að hækka, sérstaklega á veturna, bílaleiguverðið um 12–17% og með þessum aðgerðum er verið að reyna að fá ferðamenn til að fara yfir á rafmagnsbíla. Á veturna vita það allir sem eiga rafmagnsbíla að drægnin minnkar mjög mikið. Ef það er hálka, mótvindur og kalt þá minnkar drægnin mjög mikið. Svo er það líka þannig að þegar við erum að fá ferðamenn hingað til Íslands, margir hverjir að koma í fyrsta sinn, þá þekkja þeir auðvitað ekki vegakerfið og landið og það eru ákveðnir erfiðleikar við að keyra bifreið í nýju landi. Við þekkjum það öll sem höfum keyrt erlendis að það er ekki alveg það sama að keyra til Akureyrar frá Reykjavík og keyra kannski frá München til Berlínar á vegum sem maður þekkir ekkert, hvað þá ef þú ert með rafmagnsbíl þar sem þú veist ekki hvar hleðslustöðvar eru. Við Íslendingar þekkjum það sjálfir að það skapast ákveðinn hleðslukvíði við að ferðast hingað og þangað um landið. Þá langar mig að spyrja hv. þingmann, í ljósi þess að vetrarbílarnir koma til með að kosta meira, þeir koma til með að draga minna, það er ákveðinn hleðslukvíði, það er óvissa um það hvert á að fara eða hvar hleðslustöðvarnar eru: Er líklegt að þessi handstýring stjórnvalda yfir á rafmagnsbíla komi til með að virka miðað við það sem ég hef talið upp? Það væri fróðlegt að heyra eins og með veturinn og rafmagnið, veit hv. þingmaður hversu mikið frost, hálka og vindur dregur úr drægni bíla sem t.d. eiga að draga 400 km, hvað þeir draga mikið í þannig veðri?