kílómetragjald á ökutæki.
Frú forseti. Ég þakka fyrir spurningarnar. Aðalvandinn kannski við rafmagnsbílinn að vetri og líka að sumri til er bara þær upplýsingar sem koma frá bílaleigunum. Þær voru alveg til og þær voru byrjaðar á þessu. Ég man ekki nákvæmlega tölurnar núna, það eru svo margar tölur í gangi í einu, hvað Höldur – Bílaleiga Akureyrar á marga slíka bíla í dag en þeir eru ekkert ýkja margir í heildarsamhenginu vegna þess að kúnninn vill þá ekki. Ég tengi mjög vel við það sem hv. þingmaður segir þegar hann talar um að ef þú ert að ferðast og fara inn í eitthvert umhverfi þar sem þú þekkir ekki alveg virknina, leikreglurnar, innviðauppbygginguna og það allt saman, þá viltu halda þig sem næst því sem þú þekkir. Á þeim forsendum gengur bara ekkert vel að leigja þessa bíla.
Varðandi spurninguna um hversu mikið dregur úr drægni rafmagnsbíls eftir hitastigi, þá get ég ekki gefið hv. þingmanni nákvæmt svar við því vegna þess að það er svo margt sem spilar inn í samhliða, það er hitastigið, það er vindur og það er viðnám í vegi. Það er svo margt sem vinnur saman og meira að segja voru þeir nú svo fatlaðir og illa búnir fyrstu bílarnir sem við komum með hérna að fólk var jafnvel að spara miðstöðina og rúðuþurrkurnar, en við erum sem betur fer komin langt frá því. Ég verð að hryggja hv. þingmann með því að ég get ekki svarað þessari spurningu nákvæmlega, en það er alveg þekkt að í miklum kuldum er drægnin mun skemmri og meiri líkur á að færð sé ekki góð, þannig að það spilar með. Og hvort veldur meiri skerðingu á drægni, færðin eða frostið? Ég treysti mér ekki alveg til að svara því en þetta vinnur yfirleitt saman og allt að því marki að draga úr drægninni.