157. löggjafarþing — 45. fundur,  11. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[16:50]
Horfa

Snorri Másson (M):

Virðulegur forseti. Hér erum við áfram að ræða kílómetragjald. Þetta er mikil grundvallarbreyting á því hvernig gjald er tekið af bensín- og dísilbifreiðum í umferðinni á Íslandi sem er, eins og sakir standa, gert með bensínsköttum. Þannig er í raun innheimt gjald fyrir afnot af vegunum en það verður í nýju kerfi gert með mjög — það er í sjálfu sér kannski á einstaklingsgrundvelli ekki ýkja flókið að telja kílómetrana sem maður keyrir en þegar við horfum á þetta saman, nýtt allsherjar risakerfi sem á að koma upp hjá hinu opinbera, þá getum við sagt að það sé verið að gera þetta með töluvert flóknari hætti eftir þessar breytingar en nú er gert. Þetta á að auka tekjur ríkisins um einhverja rúma 3 milljarða á ári eftir að þetta tekur gildi en það er þannig sem við sjáum það fyrir okkur núna áður en skatturinn er lagður á. Það er ekkert víst að sú verði raunin þegar upp er staðið, hvort sem er vegna mikils skrifræðiskostnaðar sem fellur á ríkisvaldið við að sýsla með þessa nýju gjaldtöku eða þá í ljósi þess, sem hætt er við við þessar kringumstæður, að innheimtan af kílómetragjaldinu verði einfaldlega mun dræmari en vonir standa til.

Það getur margt komið til; einfaldlega léleg skil af margvíslegum ástæðum. Við sjáum það hjá bílaleigunum. Þar hafa skilin í rafmagnsbílunum verið eitthvað á þá leið að 70–80% fólks haldi utan um þetta og greiði samviskusamlega. Þau gögn benda strax til þess að heimturnar verði ekki eins og við sjáum fyrir okkur frá upphafi. Síðan þarf ekki annað en að fletta á netinu eftir sérstökum tækjum til að stoppa mælinn í bílum og stöðva kílómetratalninguna. Í eldri bílum skilst mér að þetta sé mjög einfalt. Við höfum nú séð meiri háttar fjölmiðlamál um þetta á síðari árum þar sem þetta var gert kerfisbundið án þess að nokkur tæki eftir því um nokkurt skeið. Eins og maður vill trúa á hið góða í fólki þá er engu að síður ástæða til að hugsa hvort þetta bjóði hættunni heim. Það er auðvitað ákveðið öryggisatriði að fólk sé ekki að gera þetta og það er mjög slæmt að búa til þann hvata hvað varðar eldri bíla að menn séu að eiga við kílómetrafjöldann sem ekinn hefur verið. Ég raunverulega hvet fólk sem kann að hlusta á þetta til að fletta því upp á netinu. Það er mjög auðvelt að kaupa svona græju þótt ég viti ekki nákvæmlega hvernig maður setur hana upp og ætli mér síst að fara að gefa leiðbeiningar um það.

Það færir okkur að einhverju leyti að kjarna málsins hér, þetta og svo þetta augljósa meiri háttar flækjustig sem er verið að innleiða hjá ríkisvaldinu; jafnvel þótt tekjurnar fengjust væri flækjustigið sem af þessu hlytist það íþyngjandi að það myndi varla borga sig. Eins og einhver hefur bent á hefði verið hægur leikur að sleppa því að auka útgjöld um 143 milljarða og fara frekar í 140 og þar með þurfa ekki að fara í gegn með þessa aðgerð. Í fyrri ræðu minni rakti ég svona tæknilegar forsendur fyrir þessum breytingum. Ég er ekki af hugsjónaástæðum mótfallinn því að fólk borgi á hvern kílómetra sem það keyrir. Það er ekki þannig heldur er það mun frekar vegna þess að eins og sakir standa tæknilega þá er ekki hægt að segja að þetta sé góður tími til að gera þetta. Vandinn er sá að ef við horfum á rafmagnsbílana, sem eru bara flestir tæknivæddir, í raun og veru farnir að virka eins og tölvur, þá er sjálfvirk talning á þeim kílómetrum sem þar eru eknir mjög lítið mál. Hins vegar er það bara þannig að mjög margir eru á 10–30 ára gömlum bílum úti í umferðinni og þá yrði þetta alltaf að vera handvirkt. Þarna ertu að færa gjaldtöku af umferð frá þremur til fjórum olíufélögum, sem bara rukka þetta fyrir ríkisvaldið með bensíngjöldum, sem við þurfum að hafa eftirlit með, tala við og fá gögn frá, yfir á hundruð þúsunda bifreiða. Þetta myndi algerlega dreifast út um allt og við þyrftum að reiða okkur á einstaklinginn, alla í heild, til þess að sinna þessu vel.

Ég benti á að það eru ekki tæknilegar forsendur fyrir þessu. Það getur vel verið að eftir 5, 10 eða 15 ár, þegar flotinn verður allur kominn í þetta tæknilegra horf, gætum við farið með kílómetragjaldið á alla línuna. En það er alger óþarfi að gera það núna; að skapa óþarfa flækjustig, draga stórlega — vel að merkja, þannig að maður tali líka um það sem snýr að atvinnulífinu og hagsmunum atvinnulífsins hérna — úr samkeppnishæfni bílaleiga. Það er algerlega ljóst af þeim umsögnum að dæma og málflutningi sem hefur komið úr þeirri átt, eða þá frá Samtökum ferðaþjónustunnar, að það eru engin smááhrif sem þessi breyting hefur á rekstur þessara fyrirtækja. Við erum að tala um hundruð milljóna sem það kostar fyrirtækin að halda utan um þetta glænýja gjald. Það er ekki endilega að þessi hundruð milljóna, og það er bara raunverulega ekki þannig, skili sér til ríkisvaldsins heldur eru þær einfaldlega aukinn kostnaður í skrifræði.

Ég hef bent á að þetta er ekki góður tími til að gera þetta. Það er ekkert óeðlilegt að gera þetta þegar þar að kemur eða þá að leyfa málunum að þróast í þessa átt. En ég hef ekki fengið algjörlega afgerandi svör frá stjórnarliðum um það hvers vegna menn eru raunverulega metnaðarfullir fyrir því að gera þetta einmitt núna. Hvað kallar á þetta? Eru það tekjurnar eða eru það tæknilegu forsendurnar og breytingarnar í kerfinu sjálfu sem menn telja svona aðkallandi? Það væri fróðlegt að fá það fram. Hvert er helsta metnaðarmál stjórnvalda með þessum breytingum núna, sérstaklega í ljósi þess að það er ákveðnum vafa undirorpið að allar tekjurnar skili sér? Það er gömul saga og ný, en það er það og við höfum séð það nýlega í innheimtu, t.d. af gjöldum af skemmtiferðaskipum, að þar eru hærri álögur sem leiða til minni tekna.

Annað er að ef olíugjaldið er fellt niður, sem sagt í stað þess að rukka það verði kílómetragjaldið rukkað, þá eru menn auðvitað að búast við því að eldsneytisverð lækki. Við verðum að treysta því að svo verði og treysta því að einhver fylgist með því framan af. En til lengri tíma, alla vega ef ég hugsa um mig persónulega, þá mun ég ekki geta áttað mig á því hvort svo verði eða hvort menn fleyti þessu inn í verðlag. En það er auðvitað mikill freistnivandi gagnvart því. Ef þú hugsar þetta bara út frá hreinum hagsmunum, t.d. venjulegrar fjölskyldu sem er með lítinn sparneytinn bíl, þá er ekki aðeins kílómetragjaldið sem stóreykst heldur getur bensínverð jafnvel verið að fikra sig í áttina að því sem var þannig að þá eru þetta bara hreinar auknar álögur í stað þess að menn séu bara að greiða þetta í staðinn fyrir hitt. Það er líka umhugsunarefni og mikilvægt að umræðan sé tekin um það hvernig hægt er að fylgja þessu eftir en ríkið getur auðvitað ekkert farið að segja af eða á gagnvart þessum fyrirtækjum hvað þau mega gera og hvað ekki. Markaðurinn þarf að gera það og við þurfum að treysta á samkeppnina. Maður vonar að svo verði en það eru sannarlega efasemdaraddir, hvort sem er í pólitíkinni eða bara úti í samfélaginu, um að þetta skili sér raunverulega í lækkuðu verði til lengri tíma til neytenda.

Nú þegar maður dregur þetta saman þá er þetta auðvitað hluti af stærri mynd hjá stjórninni. Ég myndi vilja hvetja þau til þess að hverfa frekar af þessari braut, hverfa frá því að vera svona fús til þess við hvert tilefni að hækka skatta á almenning. Það sendir að mínu mati bagaleg skilaboð, sérstaklega núna þegar það er þröngt um budduna hjá fjölda fólks, að hér sé verið að gera þær breytingar á gjaldtöku af ökutækjum að það sé í raun og veru verið að færa greiðslubyrði af stærri tækjum eða flutningabílum eða öðru eins — ég veit ekki hvort ég geti haft flutningabíla inni í þeirri lýsingu en alla vega stærri ökutæki t.d. og þau sem eyða meira — yfir á eyðslugranna fólksbíla en það eru þeir bílar sem koma verst út úr þessum breytingum samkvæmt því sem ég hef lesið og það má leiðrétta mig ef það er rangt. Það sendir undarleg skilaboð. Ég velti fyrir mér hvort það sé vanhugsað eða hvort það sé algerlega meðvitað en það er alla vega niðurstaðan, samkvæmt þeim útreikningum sem maður sér, t.d. frá FÍB; ef heildarþyngd ökutækis er upp á 1,3 tonn þá er gjaldið hækkað um einhverja 50.000 kr. á ári en ef bíllinn er eitthvað þyngri, og eyðir meiri bensíni, þá er gjaldið að lækka. Samkvæmt einhverri annarri hugsjón væri meiri sanngirni í því að leyfa gjaldinu að vera á bensínlítranum en hér er einhver önnur hugsun í gangi og auðvitað margir þættir sem koma þarna inn.

En á heildina litið — nú gefst mér ekki mikill tími í viðbót — þá endurtek ég það sem ég hef sagt um þetta mál: Þetta er raunverulega undarleg vegferð. Maður segir það algerlega í fullri einlægni. Það er mjög skrýtið skref á þessum tímapunkti að ætla að skrapa saman þessum örfáu milljörðum inn í ríkisreksturinn með þessum meiri háttar álögum á allt samfélagið og atvinnulífið. Ef til vill væri það skiljanlegt ef heimturnar væru meiri, þótt ég sé ekki stuðningsmaður þessa gjalds, en hugsunin er eiginlega óskiljanleg á þessu stigi máls þegar vel er hægt að halda núverandi kerfi í alla vega nokkur ár í viðbót á meðan rafmagnsbílarnir fasast inn og gjald er áfram tekið í gegnum bensínið.