kílómetragjald á ökutæki.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Snorra Mássyni fyrir ágætisræðu. Hv. þingmaður talaði um að skrapa saman nokkrum milljörðum. Mér þætti ágætt ef hann myndi skilgreina orðið „nokkrum“ vegna þess að ég veit að hann er ágætur í íslensku og vinnan við það að raka saman þessum nokkru milljörðum verður 1,5 milljarður. Sjálfum finnst mér „nokkrum“ vera vel í lagt samkvæmt mínum málskilningi. Það væri fróðlegt að heyra frá hv. þingmanni hvernig hann skilgreinir þetta orð. Síðan eru það orð hæstv. forsætisráðherra um bílaleigurnar, að það eigi að koma með þeim í einhverja vegferð; þá er það orkuskiptavegferðin, að bílaleigurnar hunskist til að rafvæða bílaflotann sinn, sem þær hafa reyndar reynt að gera en það hefur ekki gengið eftir. Mig langar líka að fá fram svona pælingu hv. þingmanns um það hvers vegna það hefur gengið illa fyrir bílaleigurnar að fá ferðamenn til að nota rafbílana. Þær sitja uppi með fullt af rafbílum. Þær eru búnar að reyna þetta, það er búið að reyna að kaupa rafbíla en það er ekki eins gott að leigja þá út. Ætli þingmaður sé ekki með einhverjar hugmyndir um það hvers vegna það er. Mér þætti vænt um að heyra hans pælingar í því og hvort það sé almennt ráðlegt að ætla að handstýra hegðun fólks með einhverjum hætti, hvort það hafi gefið góða raun í gegnum tíðina? Er það til þess fallið að breyta viðhorfum að handstýra einhverjum málum í einhvern tíma? Mér þætti vænt um að heyra hv. þingmann reyna að svara því.