157. löggjafarþing — 45. fundur,  11. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[17:03]
Horfa

Snorri Másson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir ágæta spurningu. Já, 2 milljarðar væri þá niðurstaðan þarna og það er kannski vel í lagt og væri heldur annarra að reyna að fegra þá upphæð. Það er ekki mikið fyrir þetta vesen, það er bara staðan. Ég held að það sé mikill dulinn kostnaður sem hlýst af því að halda utan um þetta í rekstri fjölda fyrirtækja, bara í starfsmannahaldi og öðru eins veseni. Síðan er það síðari spurningin sem laut að rafmagnsbílunum. Ég hef sagt að ég sé fylgjandi orkuskiptum en ég held líka að markaðurinn muni færa okkur orkuskiptin að langmestu leyti, þ.e. eins og umhverfið er núna er augljóslega hagkvæmt við margvíslegar aðstæður á Íslandi að eiga rafmagnsbíl en sérstaklega innan bæjar, kannski ekki jafn mikið á veturna úti á landi og þegar vegirnir eru ekki nógu góðir og annað eins, þá treystir fólk betur á hina orkugjafana.

En að þvinga bílaleigurnar til að kaupa rafbíla í stórum stíl — stjórnvöld geta í sjálfu sér hvatt menn til þess en ef sú tilraun er gerð og á daginn kemur að það gengur mjög illa að leigja þá bíla út þá held ég að menn þurfi kannski frekar að horfast í augu við þann veruleika í stað þess að leggja það á herðar þessara fyrirtækja sem eru, samkvæmt þeim aðstæðum sem maður les í núna, ekki í frábærri stöðu til að kaupa bíla inn í stórum stíl af hugmyndafræðilegum eða samfélagslegum ástæðum, þar að auki án afgerandi og augljóss ávinnings fyrir samfélagið. Ég held að það sé vafasamt. Ég heyri bara frá bílaleigunum að þrátt fyrir að þingmenn, t.d. hv. þingmenn meiri hlutans, segi að það sé bara alveg eins gott fyrir bílaleigurnar að koma með okkur í þessa vegferð, eins og hún er kölluð, þá er raunin í rekstrinum allt önnur og þessir bílar leigjast illa. (Forseti hringir.) Ég gekk nú svo langt að segja að það væri nördalegt að leigja sér rafmagnsbíl í fyrri umfjöllun um þetta mál. Það getur auðvitað verið fínt en kannski ekki þannig að fólk virkilega treysti því á þessu stigi máls.