157. löggjafarþing — 45. fundur,  11. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[17:05]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Snorra Mássyni fyrir prýðissvar við mínu andsvari. Nú langar mig að þeir sem á þetta horfa hugsi aðeins um það hvernig þeir hegða sér í kringum rafbíla. Mjög margir sem eru að horfa eiga rafbíla. Ég hef það frá stórum bílaleigum hérlendis að ástæða þess að menn leigja ekki rafbíla sé að mörgu leyti þessi óvissa í kringum hleðsluna. Langflestir sem eiga rafbíla hlaða þá heima hjá sér. Það er vegna þess að það er hentugt, menn þekkja það og það er ákveðið öryggi fólgið í því. Maður er að ákveðnu leyti berskjaldaður þegar maður er að ferðast einhvers staðar. Þú ert einhvers staðar, hvort sem er úti á landi á Íslandi eða erlendis, þar sem þú ert ekki á þínum heimaslóðum og getur ekki gripið til plans B einn, tveir og þrír. Það er mjög rökrétt að leigja sér bíl sem gengur fyrir jarðefnaeldsneyti vegna þess að á milli þeirra stöðva þar sem þú sækir slíkt eldsneyti eru aldrei meira en 50 km. Þannig er net slíkra stöðva.

Það sem mig langar að spyrja hv. þingmann um núna er, og það væri gaman ef hann gæti hugsað aftur í tímann því að hann hefur líklegast leigt bílaleigubíl einhvern tímann: Hafði það áhrif á það hvort það var ákveðið hámark á akstursvegalengd bílanna, eða einhver kílómetratalning, hversu langt hann fór á bílnum? Ef hann vissi að hann færi yfir ákveðinn fjölda kílómetra, passaði hann sig á því ef hver kílómetri var talinn? Ég spyr um þetta vegna þess að ég hef töluvert miklar áhyggjur af því að hér muni ferðamenn mun síður fara lengra út á land. Það sem ferðaþjónustan hefur einmitt verið að leggja svo mikið í er að ferðamenn dreifist um landið og fari lengra og sæki dýpra inn í dali þannig að fleiri njóti þess ágóða sem af ferðaþjónustunni hlýst.