157. löggjafarþing — 45. fundur,  11. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[17:07]
Horfa

Snorri Másson (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Þetta er verðug spurning hjá hv. þm. Jóni Pétri Zimsen: Hvernig enda ferðaþjónustan og bílaleigurnar á að verðleggja þetta gagnvart viðskiptavinum? Það er boðið upp á samninga þar sem þú mátt keyra ótakmarkað og svo er boðið upp á takmarkaðri samninga sem fara þá eftir kílómetrafjöldanum, þá ertu rukkaður í samræmi við þá ef þú ferð yfir eitthvert mark og þetta bætist þá inn í það. Að sjálfsögðu er það augljóst að þegar hvatinn er þannig að þú ert rukkaður meira eftir því sem þú keyrir meira þá dregur það úr líkunum á því almennt, á heildina litið, að fólk fari meira um landið þótt það geti verið einstaklingsbundið með ýmsu móti. Þar komum við líka að máli sem ég kom ekki inn á í minni ræðu en hef ákveðnar áhyggjur af í þessu: Allar aðgerðir eins og þessi, eins og bent hefur verið á, geta aukið árstíðasveiflu í ferðaþjónustunni ef bílaleigurnar verða verr úti og að þetta verði dýrara. Þá geta menn síður verið að mæta hérna á þessum tímum sem við viljum dekka yfir allt árið. Það er á meðal þess sem ég tel t.d. mjög mikilvægt í ferðaþjónustunni núna, að við gefum ferðaþjónustunni ákveðin tækifæri og svigrúm til að þróast út frá framleiðniþáttum og öðru eins, þ.e. að við séum að gera meira fyrir minna og nýta innviðina og fjárfestingar betur. Þá eykst framleiðni og almennt séð verður t.d. minni þörf á innfluttu vinnuafli sem er hagrænn þáttur sem ég hef bent á og varðar hagsmuni allra Íslendinga, að við séum ekki að flytja inn jafn mikið af fólki og raun ber vitni. En þá þarf líka að leyfa þessum atvinnugreinum að þroskast inn í aukna framleiðni, að ná að hafa svigrúm til fjárfestinga og annars eins. Þar með hefur manni tekist að flétta þessa þætti listilega saman, að ná að tengja kílómetragjaldið aftur við innflytjendamál, sem mér tókst reyndar líka í gær. En það er engu að síður ákveðin heildarmynd sem stjórnvöld bera bara hreinlega ábyrgð á. Þetta eru stjórnvöld sem eru að tala um að þau vilji fara í atvinnustefnu, vilji einmitt auka framleiðni í störfum og annað eins. Þá þarf að hugsa um hver geta fyrirtækjanna er til að fjárfesta og til sjálfvirknivæðingar. (Forseti hringir.) Þar nefna menn alveg augljóslega að það er auðvitað að draga úr árstíðasveiflunni yfir árið, þá kemur einfaldlega miklu betri rekstur í fyrirtækin.