kílómetragjald á ökutæki.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Rósu Guðbjartsdóttur fyrir ágæta ræðu. Hv. þingmaður fór svo sem allvíða í ræðunni en dvaldi þó talsvert við einn þátt í þessu stóra máli og það varðar bílaleigurnar. Ég ætla reyndar hér í seinni ferð að fara aðeins annað. En úr því að hv. þingmanni varð tíðrætt um bílaleigurnar þá langar mig aðeins að vitna í beina tilvitnun í frétt á RÚV þar sem haft er eftir hæstv. fjármálaráðherra, með leyfi forseta:
„„Ég held að vísu að kílómetragjaldið hafi verið svo lengi í umræðunni, það var boðað á tímum síðustu ríkisstjórnar, að þar hafi verið kominn mjög góður fyrirvari,“ segir Daði sem tekur einnig fram að allar breytingar á gjaldtöku af ökutækjum hafi verið boðaðar í fjármálaáætlunum mörg ár aftur í tímann.“
Þetta er svar hæstv. ráðherra við gagnrýni um að það skorti fyrirsjáanleika. Við getum auðvitað tekið ákveðinn tíma hér í að ræða hversu fjarstæðukennt svarið er því að það er alls konar sem við erum að ræða á hverjum tíma. Ég ræddi hér síðasta vetur í einni ræðu t.d. hvort við þyrftum ekki að mynda okkur einhverja skoðun á óheftum útflutningi á hrossasæði til að verja samkeppnisstöðu okkar á þeim markaði. Það þýðir ekki að við séum að fara í einhverjar aðgerðir þar þó ég hafi rætt það.
Ég vil leyfa mér, áður en tíminn rennur alveg út í þessari fyrri ferð, að vísa í umsögn Bílaleigu Akureyrar, sem ég gerði hér í svari áðan líka, en menn virðast ekki geta svarað þessu. Með leyfi forseta:
„Tal um fyrirsjáanleika þar sem umrætt gjald hafi þegar verið komið til umræðu fyrr á árinu er marklaust því við getum ekki kynnt eða upplýst viðskiptavini okkar um neitt fyrr en endanleg útfærsla liggur fyrir og hefur verið samþykkt á Alþingi.“
Finnst hv. þingmanni þessi svör hæstv. ráðherra boðleg?