157. löggjafarþing — 45. fundur,  11. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[17:33]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Nei, þetta er auðvitað ekki boðlegt. Þetta lýsir bara litlum skilningi á því hvernig raunhagkerfið virkar, hvernig fólk sem er að reka fyrirtæki, stór sem smá, þarf að sjá fram á hvernig næsti mánuður og þarnæsti virkar bara til að eiga fyrir launum og öðrum gjöldum. Mér finnst þetta svona merki um að það sé verið að gera lítið úr því að fyrirtækin séu bara hérna að hamast og berjast fyrir því mörg hver. Flest þeirra sem eru vel rekin þar eru þannig að þeir sem þeim stjórna eru alltaf með augun á boltanum og að huga að því hvernig væri hægt að spara og hvernig ætti að gera hlutina. Þetta er mjög mikil einföldun og í rauninni lýsir skorti á þekkingu og skilningi á því hvernig það er að reka fyrirtæki og þurfa að berjast frá mánuði til mánaðar oft og tíðum og hversu mikilvægur fyrirsjáanleikinn er, að geta verið að reka sitt litla fyrirtæki og gera áætlanir einhverja mánuði fram í tímann en eiga ekki alltaf von á einhverjum stórkostlegum breytingum eins og þessu. Það er ástæðan fyrir því að á síðasta kjörtímabili var ákveðið að falla frá breytingum á þessum hlutum og nýta áfram núverandi kerfi sem t.d. Landssamband vörubifreiðaeigenda benti á í ályktun sinni að væri tiltölulega einfalt og skilvirkt kerfi og fleiri hafa bent á það. (Forseti hringir.) Það er gott að yfirfara hlutina og reyna að breyta og bæta en ekki með íþyngjandi aðgerðum og skattahækkunum, (Forseti hringir.) algjörlega grjóthörðum skattahækkunum sem ekki sér fyrir endann á hvaða áhrif kunna að hafa.