kílómetragjald á ökutæki.
Frú forseti. Ég þakka fyrir svarið. Mig langar í seinni spurningunni að fara á allt önnur mið. Nú hefur stundum verið talað um að þetta sé í raun og veru val, það sé eingöngu verið að rukka eftir því sem notað er. Þeir borga sem nota — þreyttur frasi sem er margbúið að svara og við dveljum ekki lengur við hann. Málið er nefnilega að það nota allir vegina, líka þeir sem hafa ekki bílpróf því þeir fá vörurnar til sín sem þeir kaupa í búðinni með vöruflutningabílum. Þær vörur úti á landi eru að fara að hækka.
Annar vinkill á þessu, frú forseti, er að þeir sem búa í þéttbýlinu, stærri stöðunum, hafa í langflestum tilfellum þetta val sem hefur stundum verið nefnt. Það er hægt að ganga, hjóla, taka strætó, taka leigubíl o.s.frv. til að koma sér í nauðsynlega þjónustu eða afþreyingu, ef því er að skipta. Víða í dreifbýlinu og í minni bæjum hringinn í kringum landið er þetta val ekki til staðar. Það er enginn strætó, það er jafnvel enginn leigubíll og ekki hjóla menn fleiri hundruð kílómetra til að komast til þjónustu hjá heilsugæslu eða slíkt. Ég spyr, af því að nú veit ég að hv. þingmaður er búsettur hér á höfuðborgarsvæðinu og hefur því haft þetta val: Getur hún tekið undir með mér í því að þetta sé landsbyggðarskattur? Fyrst og fremst mun þetta koma hart niður á landsbyggðinni, m.a. í ljósi þeirra dæma sem ég nefndi hér.