kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Já, ég tek fyllilega undir það að þessar aðgerðir, eins og þingmaðurinn var að lýsa og við mörg hver hér í dag og í gær höfum verið að koma orðum að, munu fyrst og fremst koma illa niður á landsbyggðinni. Ég er alveg sannfærð um það. Fyrir utan það að þetta kemur náttúrlega niður á fjölskyldunum sem búa alls staðar á landinu.
En varðandi ferðaþjónustuna, sem er gríðarlega mikilvæg atvinnugrein, þá mun þessi aðgerð fyrst og fremst koma niður á henni og ekki síst í hinum dreifðu byggðum og víðar. Það er ákveðin hætta í því að ferðamenn velji núna bara ákveðnar leiðir, haldi sig á þessum vinsælustu leiðum og fari ekki út í dreifðari byggðir og meira um landið eins og þeir eru að gera á sínum bílaleigubílum og njóta þess í litlum sem stórum hópum að fara hingað og þangað um landið, leita að ævintýrum og njóta ólíkrar náttúru, útsýnis og þjónustu. Þetta er gríðarlega vont mál fyrir landsbyggðina, eins og ferðaþjónustan hefur svo kröftuglega verið að benda á þar sem þeir hafa einmitt mestar áhyggjur af því sem ég er að lýsa; að ferðamenn muni velja það að vera á mjög afmörkuðum svæðum og fari ekki langt út fyrir ákveðinn radíus. Því er þetta landsbyggðarskattur, alveg hreinn og tær.