157. löggjafarþing — 45. fundur,  11. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[17:46]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Frú forseti. Hér eru hefðir kannski brotnar en ræða hv. þm. Lóu Jóhannsdóttur var afbragðsfín og því langar mig að fá að ræða aðeins við hana og almennt er það líka bara ágætt ef fólk er til í að fara í gegnum erfiða hluti eins og það að mæta andsvörum, þá eru menn bara miklu fljótari að læra í stað þess að forðast hlutina. Hv. þingmaður getur verið stoltur af sjálfum sér með það. En í ræðu hv. þingmanns kom fram að þetta kílómetragjald er nú til umræðu 11. desember, í dag, og lögin eiga að taka gildi 1. janúar 2026. Það sem mig langar að spyrja hv. þingmann um, kannski að hann geti svarað því, ég vona það, er hvað honum finnist um skattlagningu með svo stuttum fyrirvara. Það sem gerðist t.d. í veiðigjaldinu var að þar var talað um fyrir kosningar að það ætti að taka tíu ár að tvöfalda veiðigjaldið. Það var gert með einni lagasetningu, tvöfaldað. Nú er það sama upp á teningnum. Við erum með stjórnvöld sem skapa gríðarlega pólitíska óvissu um það fyrir atvinnulífið hvað gerist næst. Hverjir verða skattlagðir næst? Get ég sett fram plön eitt eða tvö ár fram í tímann?

Það sem mig langar að spyrja hv. þingmann um er hvað svona pólitísk óvissa gerir fyrir atvinnulífið, að vita ekki hvernig næstu ár eða næstu misseri verða t.d. varðandi skattlagningu. Er það hvetjandi fyrir atvinnulífið að taka áhættu eða er það letjandi? Hvað heldur hv. þingmaður (Forseti hringir.) um þetta? — Hér voru liðnar tvær sekúndur, hæstv. forseti, þannig að þau eru ansi naum tímamörkin. Ég vona að þetta sé almennt svona hjá hæstv. forseta.

(Forseti (KÁB): Forseti vonar að hann sé sanngjarn gagnvart öllum hv. þingmönnum, en á kannski til að gleyma sér stundum.)