157. löggjafarþing — 45. fundur,  11. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[17:48]
Horfa

Lóa Jóhannsdóttir (M) (andsvar):

Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Hvað finnst mér um þennan ófyrirsjáanleika hjá ríkisstjórninni hvað varðar skattahækkanir á fyrirtæki? Þetta er auðvitað alveg afskaplega letjandi fyrir fyrirtæki. Það er ekki hvetjandi að vita ekki hvernig næstu mánuðir verða í bókhaldinu og ég get ekki séð annað en að þetta hafi einstaklega mikil áhrif á allan þroska hjá fyrirtækjum og ég get ekki ímyndað mér annað en að flest fyrirtæki í landinu séu bara frekar hrædd við að taka einhver stór skref eða fara í einhverjar fjárfestingar þegar þau vita í raun ekki hvað gerist í næsta mánuði.