157. löggjafarþing — 45. fundur,  11. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[17:49]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir mjög gott andsvar. Ég held að það tengi allir við það sem reka eitthvað, hvort sem það er heimili, fyrirtæki eða annað, að fyrirsjáanleiki varðandi næstu misseri er nauðsynlegur til þess að geta rekið sig áfram og skipulagt sig, fjárfest eitthvað. Ætla menn að kaupa bíl í næstu framtíð? Við sjáum það bara núna að það var mörg hundruð prósenta aukning í bílainnkaupum núna fyrir þessi áramót vegna hækkunar á vörugjöldum. En það sem mig langar að spyrja og fjalla aðeins um og ræða við hv. þingmann er þetta með bílaleigurnar, íslenskar bílaleigur. Það eru fá önnur lönd með þá skiptingu að 70% notenda bílaleiga séu erlendir ferðamenn eins og hér á Íslandi. Þetta er 20% í öðrum löndum. Og hvað heldur hv. þingmaður, hvaða áhrif hefur þetta sérstaklega á vetrarleiguna? Það er verið að handstýra mönnum inn í rafmagnsbíla og við vitum að rafmagnsbílarnir draga mun styttra á veturna, hér eru innviðir ekki nógu góðir og hér erum við með aðstæður sem fullt af erlendum ferðamönnum þekkja ekki og vegirnir eru ekki jafn góðir og erlendis. Hvaða áhrif, ef þetta frumvarp verður að lögum, hefur þetta mögulega á komu ferðamanna, sérstaklega um vetrartímann þegar við þurfum þá? Ferðaþjónustan hefur reynt að draga úr árstíðasveiflum. Þau vilja koma ferðaþjónustunni yfir á veturna til að nýta innviðina rétt þannig að það verði hagkvæmt að vera í ferðaþjónustu. Spurningin er, hún er ekki löng: Hvaða áhrif mun þetta frumvarp, ef það verður að lögum, hafa á komu ferðamanna, sérstaklega á veturna?