kílómetragjald á ökutæki.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir aðra spurningu. Áhrifin sem frumvarpið mun hafa á ferðamenn eða bílaleigur heilt yfir eru náttúrlega þau að það mun draga verulega úr komu ferðamanna hingað til landsins og sérstaklega þegar talað er um rafbílana og óvissuna hvað varðar drægni þeirra yfir vetrartímann. En bara heilt yfir með bílaleigurnar þá eru þær núna búnar að selja langt fram á næsta ár, alla bílaleigubílana sína, og nú þurfa þær að fara að búa til alveg glænýja kostnaðarskrá hjá sér. Það mun hafa virkilega mikil áhrif.