kílómetragjald á ökutæki.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir prýðisræðu. Mig langar að fara aðeins í umræður dagsins í kjölfarið á ræðu þingmannsins sem vék nú meira að segja stuttlega að þeim fundi sem ferðaþjónustan stóð að í morgun, og mig minnir að hafi verið undir yfirskriftinni kolefnisspor í ferðaþjónustu. Þar sat hæstv. fjármálaráðherra fyrir svörum, eða gerði a.m.k. tilraun til að sitja fyrir svörum. Eftir þann fund var tekið viðtal við hæstv. fjármálaráðherra og unnin úr því frétt sem nú liggur fyrir og er komin á RÚV. Þar segir, haft beint eftir fjármálaráðherra: „Kílómetragjaldið í sjálfu sér hækkar ekki kostnað af rekstri bifreiða og á í sjálfu sér ekki að hafa nein sérstök áhrif á ferðaþjónustuna. Þannig að ég tel nú ekki að þessi ríkisstjórn hafi sýnt neitt annað en velvilja í garð ferðaþjónustunnar.“ Ég ætla að hafa augnabliksþögn til að leyfa þessu að síast inn. Á hvaða vegferð er hæstv. ríkisstjórn og hæstv. fjármálaráðherra? Við erum aftur komin, hv. þingmaður, á þann stað í umræðunni að það skipti engu máli og hafi engin áhrif að hækka skatta. Því voru þeir þá ekki hækkaðir meira? Mér er algjörlega hulið hvernig hægt er að selja nokkrum einasta manni það að hægt sé að stórauka skatta og það hafi bara engin áhrif. Mig langar að spyrja hv. þingmann út í hans tilfinningu fyrir því hvernig mannleg hegðun bregst við útreikningum og excel-skjölum af þessu tagi.