157. löggjafarþing — 45. fundur,  11. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[18:05]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni fyrir fínt andsvar. Það má spyrja þá sem vilja hækka skatta og segja að það bæti þjóðarhag: Hvers vegna hækkum við þá ekki skatta upp úr öllu valdi? Þetta var auðvitað reynt í ráðstjórnarríkjunum og reyndist ekki vel. Það er kannski næsta skref hjá hæstv. fjármálaráðherra að fara með þetta kílómetragjald yfir í sentímetragjald. Það gæti orðið einhvers konar hundraðföldun á gjaldinu og það myndi þurrka upp allan hagnað og síðan væri hægt að ríkisvæða bílaleigurnar. Það er kannski einhvers konar stefna hjá þeim en það er ótækt. Ég var eiginlega að nefna það áðan að við myndum með einhverjum hætti hætta að tala svona í þinginu eins og hæstv. ráðherra gerir. Heldur hæstv. ráðherra að ferðaþjónustan og bílaleigurnar séu bara í einhverjum þykjustuleik? Auðvitað eru þessir aðilar í hagsmunagæslu, ég geri mér grein fyrir því. En þegar verið er að þurrka hagnað greinarinnar upp með þessu kerfi sem kostar 1,5 milljarða í rekstri, og því er lýst með trúverðugum og hlutlægum hætti hvaða áhrif það hefur á bæði bílaleigurnar og ferðaþjónustuna, þá finnst mér hreinlega ekki boðlegt fyrir ráðherra málaflokksins að svara svona. Það er bara ekki boðlegt. Ég held að innst inni viti hann það og ég hef á tilfinningunni að þetta séu bara einhverjir borðleikir eða Morfís-ræðukeppni. Og það er ekki gott þegar við erum að reka heilt samfélag þannig.