157. löggjafarþing — 45. fundur,  11. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[18:07]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka svarið. Hv. þingmaður svaraði þessu svolítið í þá átt sem ég átti von á. Svo að ég gleymi því ekki, frú forseti, þá vék hann að því í ræðu sinni áðan og hvatti ríkisstjórnina til að endurskoða þetta á þeirri forsendu að mönnum dytti nú sjaldnast besta lausnin í hug strax. Yfirleitt þyrfti að skoða málin eitthvað betur áður en besta lausnin kæmi fram. Ég er í prinsippinu sammála þeirri fullyrðingu en akkúrat í þessu tiltekna máli þá held ég að mér hafi dottið besta lausnin í hug strax, sem er bara að henda þessu máli, bara hendum þessu. Þetta er komið út í skurð og bútasaumur og minni háttar lagfæringar hér og þar eru ekkert að fara að leysa þetta mál hér eftir. Það er búið að liggja yfir þessu af eldkláru fólki til lengri tíma og þetta er afurðin. Nei, nú er komið gott, bæði af skattheimtu yfirleitt og ferli þessa máls. Látum þetta í tunnuna.

Í vangaveltum okkar um hvað við ætlum að hafa út úr þessu þegar upp er staðið, fari málið með þessum hætti í gegn, sem ég vona heitt og innilega að verði ekki, þá er til að mynda farið yfir það í umsögn frá Bílaleigu Akureyrar hvað muni væntanlega gerast. Þar segir, með leyfi forseta:

„Það er okkar mat að ofangreind hækkun mun ekki skila ríkissjóði ætluðum 17 milljörðum og raunar er það okkar mat að tekjurnar muni ekki einu sinni ná þeim 10 milljörðum sem þær eru í dag. Endanleg áhrif verða þessi:

• Tekjulækkun fyrir ríkissjóð í formi beinna tekna af vörugjöldum.

• Tekjulækkun bifreiðaumboða vegna minni sölu = samdráttur í greininni.

• Tekjulækkun ferðaþjónustu vegna minni sölu (vegna hærra verðs) = samdráttur í greininni. Slíkum samdrætti fylgja mikil „ruðningsáhrif“ á alla sem vinna óbeint með greininni […].“

Getur hv. þingmaður tekið undir þetta og við svo kannski rætt ruðningsáhrif í næstu ræðu? Því að þau verða mikil.