kílómetragjald á ökutæki.
Frú forseti. Já, hér hafa bílaleigurnar talað og ég held í raun að þetta sé töluvert verra en þarna er lýst vegna þess að heildarskattsporið mun minnka að mínu mati töluvert við þessa aðgerð. Það er að ákveðnu leyti verið að stefna í voða þessum aðilum sem hjálpa til við að dreifa ferðamönnum um landið og taka á móti þeim og annað slíkt. Ferðamannaiðnaðurinn á undir högg að sækja núna og er viðkvæmur og berskjaldaður. Þegar komið er með svona frumvarp inn í þingið 11. desember, lögin eiga að taka gildi 1. janúar 2026 og menn eru búnir að gefa út verðskrár, þá er alveg ljóst að ekkert fyrirtæki í landinu ætti í raun að geta búist við einhverju svona þrátt fyrir að í einhvern tíma hafi verið rætt um kílómetragjald. Það er algjörlega ómögulegt fyrir atvinnulífið að búa við pólitískan óstöðugleika og pólitíska óvissu. Og í nafni hvers? Og svo ég ítreki það þá virkar þetta svolítið eins og menn vilji bara koma einhverju í gegn, hvort sem það skilar ábata fyrir samfélagið eða ekki, til að geta bara tékkað í boxið. Ég hef því miður séð nokkur þannig mál birtast hjá flokkunum. En auðvitað er ágreiningur um þetta og ég efast ekkert um að einhverjir trúi því að þetta sé gott og við fáum vonandi að heyra eitthvað í þeim fljótlega.