kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir hans ræðu sem og hans mat á mínu gáfnafari. Mig langar að spyrja um nokkra hluti. Þingmaðurinn nefnir það sérstaklega að hann telji að það sé engin uppgjöf fólgin í því að breyta hlutum sem koma frá ríkisstjórn. Þá vil ég bara benda þingmanninum á að í fyrsta skipti sem þetta frumvarp kom hér á síðasta ári þá kom efnahags- og viðskiptanefnd með breytingartillögu upp á sjö blaðsíður og núna var breytingartillaga upp á þrjár blaðsíður til viðbótar. Það er sannarlega ekki þannig að nefndin þori ekki að hrófla við neinu sem frá ráðuneytinu kemur. Breytingarnar eru margar, t.d. eru breytingar hvað varðar dráttarvélar og tekið fram að nú séu þær alfarið undanþegnar kílómetragjaldi. Þetta er eitthvað sem hefur gerst í meðförum nefndarinnar sem og sú breyting að lágmarkstími daggjalds hefur verið styttur töluvert. Í upphaflegu drögunum voru þetta þrír mánuðir, síðan styttum við það í einn mánuð og nú síðast styttum við í 15 daga. Þetta er ekkert sem kemur frá ráðuneytinu. Þetta er eitthvað sem bara gerist í meðförum nefndarinnar, þegar nefndin hlustar á umsagnaraðila o.s.frv. Ég vil bara halda þessu til haga. Svo fannst mér orðinn ágætur jákvæður tónn hjá hv. þingmanni og ég myndi segja að ég er ekki sammála því að ég sem framsögumaður hafi ekki hlustað á fulltrúa minni hlutans eða fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í nefndinni. Ég skynjaði það hins vegar svo að það væri bara óbrúandi bil milli fulltrúa Sjálfstæðisflokksins og meiri hlutans af því að fulltrúar Sjálfstæðisflokksins voru bara alfarið á móti hugmyndinni. Það var ekki þannig að þeir væru til í hana ef hinu og þessu væri breytt heldur var það bara grundvallarhugmyndin sem var ólík. Ef það hefðu verið einhverjar hugmyndir um tilfærslu á gjaldinu hefði framsögumaður sannarlega verið til í að bregðast við því. En út af því að þingmaðurinn segir að hann sé tilbúinn að vinna þetta mál áfram með meiri hlutanum þá langar mig að spyrja: Hvaða hugmyndir hefur þingmaðurinn til bóta við þetta frumvarp sem myndu auka líkur á því að hann gæti ýtt á græna takkann í lokin?