kílómetragjald á ökutæki.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Pawel Bartoszek fyrir fínt andsvar. Það er þannig að mjög mörg frumvörp sem hafa komið hingað í þingið frá stjórnarmeirihlutanum — nú vil ég ekki fara í neinar Morfís-stellingar — hafa mörg hver ekki verið nógu vel unnin. Alveg eins og með dráttarvélarnar í þessu; við erum að tala um að vörugjöldin séu að hækka á fjórhjólum um 40% fyrir bændur. Það eru alls konar svona hlutir sem kannski eru settir inn sem einhver svona samningstækniatriði, að fara nógu langt í byrjun til að eiga eitthvað inni og geta bakkað einhverja metra. Ég veit það ekki, ég hef ekki sjálfur setið í meiri hluta stjórnar. En ég held að hv. þm. Pawel Bartoszek sé einlægur í því sem hann er að segja og ég trúi því alveg, hef ekki kynnst öðru frá honum hér í þinginu. Jú, það voru vissulega breytingar sem er gott. En ég vil bara ítreka það að eins og frumvarpið lítur út núna eftir þær breytingar þá er það ekki gott að mínu mati og tíminn sem menn hafa til að bregðast við er náttúrlega bara eiginlega enginn. Menn eru búnir að selja hér ferðir langt fram í tímann og hvað eiga menn að gera í því? Þetta verður algjört kaos á markaðnum og ég held að hv. þingmaður geri sér fulla grein fyrir því. Því langar mig líka bara að halda áfram að spyrja. Mitt svar við þeirri spurningu hvort ég vilji halda áfram er þetta: Helst vildi ég taka þetta frá og byrja svolítið upp á nýtt með þetta eða fresta þessu um a.m.k. ár þannig að menn hefðu tíma til að vinna málið, að fyrirsjáanleikinn væri einhver og menn gætu þá sett þetta inn í verðskrárnar og við gætum metið enn frekar áhrifin af þessu eins og málið liggur fyrir núna. Það er kannski það sem ég myndi vilja leggja til núna í mínu fyrra svari við andsvari hv. þingmanns.