157. löggjafarþing — 45. fundur,  11. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[18:19]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Pawel Bartoszek fyrir fínt andsvar. Þegar ég er að tala um frestun almennt — ég hélt ekki að þingmaður myndi segja að það væri ómögulegt — þá er það ekki vegna þess að málið sé gott. Almennt held ég að svona skattheimta kreisti súrefnið úr markaðnum. Ég held að hagfræðin sýni það almennt að við eigum að leyfa þessum aðilum sem hefur gengið vel á samkeppnismarkaði bara að þróa sig. Ég held t.d. að innviðir eigi svolítið langt í land ef það á að reyna að þvinga ferðamenn til að taka rafmagnsbíla, sérstaklega með vetrarleiguna, að menn taki rafmagnsbíla á þessu strjálbýla landi okkar. Ég held að það sé bara ákveðinn hleðslukvíði og ákveðin mannleg hegðun sem komi í veg fyrir það. Ég vildi óska þess að við hv. þingmaður gætum setið hér að spjalli í nokkur skipti í viðbót, en þetta er mitt svar við seinna andsvari þingmannsins.

Ég held að við myndum ná mun meiri tekjum fyrir ríkissjóð almennt með því að taka þessa skattlagningu af. Ég held líka að hv. þingmaður sé sammála því þótt hann sé í ríkisstjórn sem geri annað. Einhverjir verða að vinna verkin, hvort sem það eru skítverk eða ekki. Ríkisstjórnin er lýðræðislega kjörin og þau geta gert það sem þau vilja en með frestun væri alla vega komið til móts við þá sem höggið lendir á og er alveg verulega ósanngjarnt og óeðlilegt. Ruðningsáhrifin úti um allt land verða svo mikil. Þetta er virkilegt högg fyrir ferðaþjónustuna og sérstaklega fyrir hinar dreifðari byggðir. Fyrir þá sem eru á Dalvík og þá sem eru á Kópaskeri, litlu vaxtarsprotarnir þar verða bara þurrkaðir upp, því miður.