157. löggjafarþing — 45. fundur,  11. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[18:21]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Ég hef mikið velt fyrir mér hvers vegna þetta mál er komið hér inn til þingsins með þeim hætti sem um það er búið því það er augljóslega ekki til þess fallið að bjarga ríkissjóði í þeim mikla hallarekstri sem þessi ríkisstjórn hefur haldið áfram með eftir þá síðustu. Ekki er það til þess fallið eða alla vega ekki kynnt þannig að það sé lausn á loftslagskvíða hæstv. ráðherra og hv. þingmanna meiri hlutans. Hvers vegna er þetta mál komið inn í þingið með eins vanhugsuðum hætti og það birtist hv. þingmönnum og hv. efnahags- og viðskiptanefnd? Ég ætla að leyfa mér, frú forseti, að varpa fram kenningu um það. Hæstv. fjármálaráðherra getur þá leiðrétt mig ef svo ber undir eða eftir atvikum einhverjir hv. þingmenn sem þekkja til málsins. Ég tel að þetta sé mál sem hafi orðið til einhvers staðar í kerfinu. Nýr fjármálaráðherra hafi tekið við og fengið á sitt borð þessa hugmynd, þessa leið og látið tilleiðast að kynna það í ríkisstjórn og hér á Alþingi. Svo þegar innihaldið kemur í ljós og menn átta sig á eðli málsins og öllum göllum þess telji hæstv. ráðherra og hv. þingmenn meiri hlutans hér of erfitt og of seint að bakka, með öðrum orðum hafi menn tekið við og kynnt, lagt fram mál sem þeir höfðu ekki skoðað sjálfir til fulls og þegar raunveruleikinn kemur í ljós sé einfaldlega of erfitt að leiðrétta gallana, vandamálin. Þetta er því miður einkennandi fyrir allt of mörg þingmál síðastliðin ár. Þau verða til einhvers staðar fjarri kjósendum og ráðherra tekur þau að sér, kynnir þau hér og ætlast til þess að hv. þingmenn stjórnarmeirihlutans bakki sig upp og styðji sig í að koma þeim málum í gegn, jafnvel þótt þau séu meingölluð. Við höfum séð mörg svona mál bara núna í tengslum við fjárlagaumræðuna, til að mynda áformin varðandi erfðaskattinn, vörugjöldin sem eru nú þegar búin að valda heilmiklu tjóni með því að fólk hafi ekki séð sér annað fært en að taka ákvarðanir um fjárfestingar, bílakaup, til að reyna að komast hjá nýjum ofursköttum á nýju ári. Ég tel að þetta eigi við um þetta mál líka, þetta hafi bara ekki verið hugsað til enda en ríkisstjórnin, stjórnarmeirihlutinn hér, upplifi sig í þeirri stöðu að geta ekki annað en haldið áfram að keyra það í gegn, setja undir sig hausinn og segja: Viljið þið ekki betri samgöngur? Viljið þið ekki peninga í samgöngur? Enda þótt það hafi verið útskýrt hér í síðustu ræðu minni og fjölmörgum öðrum ræðum að þetta sé nú ólíklegt til að hafa grundvallaráhrif á samgöngubætur, enda hafi fyrri áform um slíkt ekki reynst hafa neina innstæðu.

Þetta mál er enn einn áfanginn í sífelldum skattahækkunum, ár eftir ár, á bifreiðaeigendur, á fyrirtæki auðvitað en líka bara á fjölskyldur í landinu sem þurfa að komast sinnar leiðar og er einhvern veginn alltaf ein auðveldasta leiðin til að ná í peninga af hálfu hugsanlega fjármálaráðuneytisins, að hækka bara enn gjöldin á bifreiðaeigendur. Hvað ætli það séu mörg gjöld lögð á bíla eins og sakir standa? Það eru auðvitað alls konar innflutningsgjöld, skattar, hefðbundnir skattar eins og virðisaukaskattur en einnig alls konar eldsneytisgjöld, loftslagsskattar, hin ýmsu refsigjöld og svo núna áform um þessi hækkuðu kílómetragjöld og raunar líka hugmyndir um veggjöld og áform um að nýjar framkvæmdir í samgöngum verði borgaðar af þeim sem nota þá tilteknu vegaspotta eða göng. Það er sem sagt sama þótt fólk borgi sífellt hærri skatta og þótt álögur á bifreiðar sérstaklega séu auknar jafnt og þétt, það þarf alltaf meira. Þetta virðist vera að mati einhverra í stjórnkerfinu vænlegasta leiðin til að ná meiri peningum af almenningi, að setja auknar álögur á bifreiðaeigendur, á fólk fyrir að komast leiðar sinnar og á fyrirtækin sem flytja vörur á milli staða.

Eins og hv. þm. Lóa Jóhannesdóttir sagði áðan þá felur þetta í sér 30% hækkun á gjaldtöku af bifreiðum. Það er ekkert smáræði. Allt þetta sem ég rakti hér áðan að einhverju leyti hafa verið hækkanir jafnt og þétt. Ein sneið í einu í trausti þess að menn myndu ekki bregðast við, myndu láta sig hafa það og borga aðeins meira næsta ár en það síðasta. En hér er um að ræða ekki bara eina sneið heldur risastórt skref í því að gera það dýrara og erfiðara fyrir fólk að komast á milli staða og fyrir fyrirtæki að flytja vörur sínar. Af hverju þarf þetta alltaf að vera svona, frú forseti? Af hverju eru stjórnvöld sífellt að gera lífið á Íslandi, eins og það getur nú verið gott, dýrara og flóknara og leiðinlegra? Því að þetta er sannarlega dýrt, 30% aukning á bifreiðar. Þetta er sannarlega til þess fallið að flækja málið með 29 gjaldaliðum og allt utanumhaldið slíkt að kannski tveir þriðju, kannski bara helmingur af því gjaldi sem stendur til að innheimta mun skila sér þegar búið er að draga frá kostnaðinn við að halda utan um þetta. Þá á eftir að draga frá tjónið sem verður af því að dregið sé úr möguleikum ferðamanna á að ferðast um landið, kostnaðinn fyrir fjölskyldurnar að komast leiðar sinnar og ég tala nú ekki um verðbólguáhrifin því svona hækkun fer beint inn í verðbólguna. Og hvað þýðir það? Jú, það verður erfiðara að eignast húsnæði og það verður dýrara að borga af því húsnæði. Þetta er því mál sem er ekki til þess fallið að auka tekjur ríkissjóðs þegar allt er reiknað. Þetta er mál sem er til þess fallið að draga úr verðmætasköpun á Íslandi, draga úr getu fyrirtækja til að reka starfsemi fjarri höfuðborgarsvæðinu, draga úr vilja til fjárfestingar utan stærsta markaðarins á Íslandi, sem er höfuðborgarsvæðið, mál sem er að því er virðist bara til þess fallið að refsa fólki fyrir að komast leiðar sinnar, keyra á eigin bíl eða kaupa sér vörur.

Þetta mál kemur fram nú rétt áður en Evrópusambandið áformar að innleiða næsta áfanga í hinum svokallaða græna pakka sínum sem Íslendingar áttu aldrei að vera þátttakendur í og þurftu ekki en álpuðust inn í með áformum um stighækkandi gjöld á flug og siglingar, skipaflutninga. Næsti áfangi í því efni er aukin gjaldtaka af flutningum og umferð á landi en nú ætlar hæstv. ríkisstjórn að verða fyrri til og hækka enn gjöld á umferð. Þýðir það að ekki verði tekið þátt í nýju álögunum sem Evrópusambandið boðar vegna græna pakkans? Ég efast um það í ljósi reynslunnar, frú forseti, og í ljósi þess hvernig til að mynda hæstv. utanríkisráðherra talar af fullkominni undirgefni gagnvart Evrópusambandinu. Þess vegna finnst mér sérkennilegt að þetta mál komi fram á þessum tíma. Það er allt sérkennilegt við þetta mál og það að ríkisstjórnin ætli að vera fyrri til, á undan Evrópusambandinu, að setja þessar auknu álögur á er væntanlega til að geta svo sagt þegar græni pakkinn kemur frá Evrópusambandinu: Ja, við verðum bara að gera þetta. Við verðum að bæta þessu á það sem þegar var búið að innleiða hér.