157. löggjafarþing — 45. fundur,  11. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[18:31]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni fyrir ágætisræðu og nýja vinkla að ákveðnu leyti í málinu sem er alltaf gott og það gerist auðvitað í umræðunni að hún dýpkar og víkkar sem er gott fyrir alla sem eru að fylgjast með og gott fyrir málið allt. En nú ætla ég að fullyrða að töluverð pólitísk óvissa sé í samfélaginu. Ég ætla að fullyrða það. Því til rökstuðnings vil ég nefna sjávarútvegsskattinn, veiðigjöldin sem hæstv. forsætisráðherra talaði um fyrir kosningar að ætti að taka tíu ár að tvöfalda en voru tvöfölduð í einu vetfangi og svo nú þetta kílómetragjald sem um ræðir hér. Bílaleigur og aðrir sem starfa við að leigja eða selja út einhvers konar farartæki sem og þeir sem flytja vörur almennt — það er enginn fyrirvari, enginn fyrirsjáanleiki. Bílaleigurnar eru búnar að selja hluti fram í tímann og þurfa því að bera kostnaðinn af þessu eða þá að rukka ferðamenn eftir á. Það er ekki góð auglýsing fyrir land að menn séu lokkaðir með einhverjum hætti inn í landið og svo kemur skattur á þá eftir á. Ég held að það upplifi það enginn sem góða þjónustu.

Það sem mig langar að spyrja hv. þingmann um, vegna þess að hann er reyndur í þinginu, er hvaða áhrif svona pólitísk óvissa eins og ríkir núna hefur á verðmætasköpun, nýsköpun, hagvöxt og annað slíkt. Hvaða áhrif hefur svona pólitísk óvissa fyrir samfélagið og verðmætasköpun?