kílómetragjald á ökutæki.
Frú forseti. Ég verð að byrja á því að biðja yður afsökunar því að ég var búinn að boða það í síðustu ræðu að í næstu ræðu myndi ég fjalla um áhrif óvissunnar. Svo bara vannst mér ekki tími til þess og hv. þm. Jón Pétur Zimsen minnir mig á það. Ég biðst afsökunar á því en þetta er áminning um að ég muni þurfa að halda fleiri ræður um þetta mál. Einnig hafði ég hugsað mér að víkja aðeins að þeim umsögnum sem hafa borist um málið því að þær eru mjög afgerandi margar hverjar og upplýsandi um galla þessa máls. En mér gefst tækifæri til þess hér í stuttum andsvörum að koma aðeins inn á þetta með óvissuna. Hv. þm. Jón Pétur Zimsen spurði, út frá reynslu af stjórnmálum og ákvarðanatöku hér í þinginu, um áhrif óvissunnar. Hún er gríðarleg. Það veit ég fyrst og fremst vegna þess að ég hef lagt mig eftir því að afla upplýsinga frá þeim sem verða fyrir áhrifum af ákvörðunum stjórnvalda og lagasetningunni hér og komist að því að menn geta látið sig hafa ýmislegt og stundum jafnvel meira en ég teldi æskilegt að menn létu sig hafa frá stjórnvöldum, en það sem fer verst í atvinnurekendur og raunar kannski heimilin líka að einhverju leyti er óvissan, þegar Alþingi heldur fólki í óvissu eða tekur ákvarðanir án þess að veita mönnum tækifæri til og tíma til að bregðast við og búa sig undir áhrif þeirra ákvarðana. Þetta er algjört eitur í beinum þeirra sem eru að reyna að reka fyrirtæki, að annaðhvort séu stjórnvöld í því að viðhalda óvissu um reksturinn eða þá að taka ákvarðanir án frests sem menn þurfa þá að bregðast við án nokkurrar aðvörunar.