157. löggjafarþing — 45. fundur,  11. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[18:36]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vissi að ég kæmi ekki að kofanum tómum hjá hv. þingmanni. Óvissa, það að halda fólki frá upplýsingum þangað til á síðustu stundu, er ákveðinn stjórnunarstíll. Það er ákveðin ógn fólgin í því. Þú veist ekki hvað kemur næst. Hagaðu þér eða ég beiti þig einhverju. Þetta er því miður tilfinningin sem maður hefur fyrir þessari ríkisstjórn. En mig langar að víkja máli mínu að öðru sem tengist líka því sem mér er mjög hugleikið, sem er mannleg hegðun. Öll vitum við að þrátt fyrir að við höfum ákveðna rökhugsun og sjáum mögulega að skattspor minnki út af einhverju, þá segja tilfinningarnar okkur eitthvað annað. Við viljum gera eitthvað vegna þess að við höldum að það sé rétt eða eitthvað slíkt, þannig að tilfinningar skipta máli í stjórnmálum og sumir eru betri í að spila inn á þær en aðrir. Hér hefur hæstv. forsætisráðherra sagt við þá sem leigja út bíla: Komið með okkur í vegferð, rafbílavæðum flotann. Bílaleigurnar hafa sagt og segja í sínum umsögnum: Frú forsætisráðherra, við höfum gert það en það vill bara enginn leigja rafbíla eða mjög fáir. Þeir fara ekki út og menn sitja bara uppi með kostnað.

Því langar mig að biðja hv. þingmann að leita aftur í reynslubankann og spyrja hann: Er það að reyna að handstýra fólki með einhvers konar þvingunum eða einhverju slíku líklegt til þess að breyta langtímaviðhorfum eða breyta langtímahegðun í stað þess að þetta fái að þróast á eðlilegan máta?