kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegur forseti. Takk kærlega fyrir og afsakið að ég hafi gefið óskýrt merki. Ég ætla að halda aðeins áfram á sömu nótum og leita í reynslubanka og viskubrunn fyrrverandi ráðherra og hv. þingmanns. Við sem yngri erum erum að stíga okkar fyrstu skref og átta okkur á hvernig þetta allt saman virkar og ég velti fyrir mér hvort það sé alltaf svoleiðis, og nú ætla ég að halda áfram að setja þetta í samhengi við það sem hann var að tala um, að þessir hefðbundnu vinstri flokkar þegar þeir komast til valda eigi það alltaf til að nota prik í stað gulrótar til að reyna að breyta venjum fólks, hvort sem það er borgarlínan í Reykjavík eða þetta eða hvað eina, að þetta sé einhvern veginn meginstef eins og þú talar um með Trabantinn. Hvort þetta sé kannski munurinn á hægri og vinstri mönnum, hvort búnir séu til hvatar sem hvetja fólk til að hegða sér á ákveðinn hátt og það sé verið að reyna að ryðja úr vegi ýmsum hindrunum fyrir einstaklinga og fyrirtæki, eða hvort það sé meginstef vinstri flokka og meiri hlutans, bæði í Reykjavík og hér á Alþingi, og hvort þú sjáir fyrir þér að þessi ríkisstjórn muni halda áfram á þessu kjörtímabili að leggja stein í götu einstaklinga og fyrirtækja og reyna að breyta hegðun þeirra með því að hækka gjöld og setja á aukna skatta, noti prikið, eins og ég segi, og þar af leiðandi neikvæða hvata í stað þess að nota gulrótina og búa til jákvæða hvata til þess að hvetja fólk til að breyta hegðun sinni á jákvæðan hátt.
(Forseti (KÁB): Forseti vill minna á að þegar vísað er til annarra hv. þingmanna að vísa til þeirra í 3. persónu.)