kílómetragjald á ökutæki.
Frú forseti. Hv. þingmaður kemur hér inn á eitt af megináhyggjuefnum mínum þessa dagana varðandi þessa ríkisstjórn. Hún er gjörólík þeirri kynningu sem fram fór fyrir kosningar á þeim flokkum sem síðan mynduðu ríkisstjórnina og áformum þeirra. Þessi ríkisstjórn hefur að miklu meira leyti en nokkur gat séð fyrir kannski smitast af hinum sósíalíska heilavírus. Hann getur verið smitandi og villt á sér heimildir, enda hver vill ekki að það ríki jafnræði og að allir hafi það gott? En þegar aðferðunum er beitt þá er niðurstaðan iðulega þveröfug. Það sama á við um beitingu kylfunnar eða priksins umfram gulrótina, það eru takmörk fyrir því hversu lengi er hægt að stjórna með þeim hætti. Þú stjórnar a.m.k. ekki með þeim hætti og eykur velmegun, tækifæri og gleði fólks. Þú bætir ekki samfélagið með því að stjórna eingöngu með valdi og með því að reyna að stýra ákvarðanatöku almennings. En það er að gerast með þessu máli og fleiri málum þessarar ríkisstjórnar. Flokkarnir sem hana mynda eru að sanna það að þeir séu hvorki á miðjunni né hægri flokkar heldur hreinir vinstri flokkar ef við bara lítum á þetta út frá áherslum þeirra og rökstuðningnum, ef rökstuðning skyldi kalla, fyrir ákvarðanatökunni.
Já, ég tel þetta mikið áhyggjuefni og ég tel að þetta mál eigi að vera til þess fallið að kveikja viðvörunarljós hjá okkur í stjórnarandstöðunni en líka hjá íslenskum almenningi og bregðast við, frú forseti, því að hættan er alltaf sú að menn hugsi sem svo: Jæja, þetta líður hjá. Sleppum þessu máli, leyfum því bara að fara í gegn. Svo kemur bara meira af því sama.