157. löggjafarþing — 45. fundur,  11. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[18:45]
Horfa

Viktor Pétur Finnsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Þá ætla ég aðeins að halda áfram með það sama en kannski taka aðeins annan vinkil og fá að spyrja hv. þm. Sigmund Davíð Gunnlaugsson því að manni eru svolítið hugleiknar þessar ákvarðanir ríkisstjórnarinnar og maður er að hugsa um á hvern þetta hefur áhrif. Þessi ríkisstjórn reynir að tala eins og hún sé hér fyrir annars vegar ungt fólk og þá sem eru tekjulægri þar sem þau hafa reynt að beita sér fyrir bættum kjörum sem flestra, sem er vel. En ég væri til í að heyra hvort þú sért sammála mér að þær breytingar sem nú eru að eiga sér stað séu ekki til þess fallnar að falla vel í kramið hjá yngri kynslóðum sem núna mælast og eru mælanlega hægri sinnaðri en áður og vilja aukið frelsi. Ert þú jafnvel sammála mér um að þessar breytingar sem nú liggja fyrir séu jafnvel til þess gerðar að flokkar sem eru mótfallnir þessum breytingum haldi áfram að stækka og verði ríkisstjórninni að falli?

(Forseti (KÁB): Forseti vill aftur minna á að vísa ávallt til hv. þingmanna í 3. persónu en ekki 2. persónu.)