157. löggjafarþing — 45. fundur,  11. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[18:47]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Fyrst kemur hv. þingmaður og ýtir undir áhyggjur mínar og kvíða með því að minna mig á við hvað við búum. En svo kemur hv. þingmaður og veitir manni von því að það er alveg hárrétt að yngri kynslóðir eru, ótrúlegt en satt, að átta sig á meinsemdum sósíalismans og rísa upp, bregðast við. Þetta kemur mörgum á óvart því að um alllangt skeið, áratugaskeið, hafði það verið þannig að yngra fólk þótti svona heldur hallt undir vinstrið og var leiðandi í róttækni af vinstri kantinum. En svo bara gerðist svo margt að það var ekki lengur hægt að líta fram hjá áhrifum og afleiðingum vinstri stefnunnar. Og hverjir komu til bjargar og gera það vonandi áfram? Það var unga fólkið. Unga fólkið er að rísa upp. Ég tel þess vegna, frú forseti, svo ég svari nú fyrirspurn hv. þingmanns, að aðgerðir eins og þessar, endalausar skattahækkanir og tilraunir til að stjórna lífi fólks muni frekar ýta undir þessi viðbrögð unga fólksins — við sem erum aðeins eldri, eins og ég og hv. þm. Jón Pétur Zimsen, munum auðvitað vera með í þeim slag — og unga fólkið komi og segi: Nei, við látum ekki bjóða okkur þetta lengur. Við kunnum að vera ung en við getum lært af sögunni. Við getum lært af reynslu fyrri kynslóða og því sem gafst vel og því sem gafst illa. Aðgerðir eins og þessar, stöðugar gjaldahækkanir á almenning, taka meira og meira af sjálfsaflafé fólks og það að reyna að stýra lífi þess hefur aldrei virkað og við munum ekki leyfa því að gerast á okkar vakt.