kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegi forseti. Í dag var haldinn frábær fundur á vegum Samtaka ferðaþjónustunnar um áhrif skattlagningar á ferðaþjónustu. Á fundinum var rifjuð upp gömul tilvitnun sem er eignuð Aristófanesi. Hann lýsir stjórnvöldum sem ákveða að skattleggja fuglinn í fjörunni áður en hann hefur náð að fljúga og áður en hann hefur yfirhöfuð lagt egg. Með vísun í þessa þekktu tilvitnun hittu samtökin naglann á höfuðið. Það er dálítið þannig sem mér finnst ríkisstjórnin nálgast ferðaþjónustuna og umræðuna um kílómetragjald. Hún sér sterka atvinnugrein, skattstofn og tækifæri til að teygja sig enn lengra inn í vasa fólks og fyrirtækja. Ríkisstjórnin sér ekki heildarmyndina, hún sér ekki áhættuna. Hún sér ekki að fuglinn þarf að geta flogið ef hann á yfirhöfuð að verpa. Ferðaþjónustan er gríðarlega dýrmæt fyrir íslenskt efnahagslíf og við verðum að byggja atvinnustefnu framtíðarinnar á vexti útflutnings og ekki á sífellt þyngri álögum á þá sem þegar eru að skila þjóðarbúinu gífurlegum verðmætum.
Virðulegur forseti. Atvinnustefna stjórnvalda til ársins 2035 talar fallega um kröftugan vöxt útflutnings og um atvinnugreinar með háa framleiðni. Það er gott og blessað. En þegar við skoðum tölurnar blasir við að ferðaþjónustan er nú þegar einn stærsti drifkrafturinn í íslenska hagkerfinu. Árið 2024 var hlutur ferðaþjónustunnar í vergri landsframleiðslu tæplega 9%. Það er hæst mælda hlutfallið til þessa. Ferðaþjónustan er ekki lengur til hliðar við hefðbundna grunnatvinnuvegi. Hún stendur með sjávarútvegi og orkuframleiðslu sem ein af stoðum lífskjara á Íslandi. Hún er orðin stærsta einstæða uppspretta útflutningstekna. Úttektir erlendra ferðamanna námu u.þ.b. 366 milljörðum kr. árið 2024. Ef við tökum þessa tekjustöð burt, eða veikjum hana verulega, munu lífskjör á Íslandi verða önnur og verri en þau eru í dag. Við hljótum öll að vera sammála um að það viljum við ekki.
Virðulegi forseti. Skýrsla sem Samtök ferðaþjónustunnar hafa látið vinna sýnir líka svart á hvítu að ferðaþjónustan stendur sig ekki einungis í útflutningi heldur skilar hún gríðarlegum skatttekjum nú þegar. Samkvæmt útreikningum voru svokölluð þröng skattaáhrif greinarinnar, þ.e. tekjuskattur fyrirtækja, tryggingagjald, mótframlag í lífeyrissjóð og skattur launafólks, um 107 milljarðar á síðasta ári. Þegar við bætum við virðisaukaskatti og öðrum gjöldum nálgumst við um 190 milljarða kr. í heildarskatttekjur af einkennandi greinum. Þetta þýðir að ferðaþjónustan er ekki bara að skapa störf, hún fjármagnar stóran hluta af sameiginlegum útgjöldum samfélagsins. 11% hér og 3% þar birtast sem laun fyrir kennara, hjúkrunarfræðinga, eflingu löggæslunnar, gerð vega og uppbyggingu innviða. Samkvæmt skýrslunni starfa nú rúmlega 30.000 manns í einkennandi greinum ferðaþjónustu. Á sama tíma og ferðaþjónustan skilar þessu mikla framlagi er afkoma greinarinnar ekki óendanlega sterk. Rekstrartekjur drógust saman að raungildi milli áranna 2023 og 2024.
Ef við erum með atvinnugrein sem skilar rúmlega 100 milljörðum í beinum sköttum, u.þ.b. 190 milljörðum þegar allt er talið með, tugum þúsunda starfa og stærstan hlut í útflutningstekjum, eigum við þá að láta fyrsta viðbragð okkar við hverri áskorun vera aukna skattlagningu á þessa grein? Eða eigum við að spyrja okkur hvernig við getum varið hana, tryggt samkeppnishæfnina og stutt við áframhaldandi vöxt? Ef við tökum nú upp kílómetragjald og hækkum samtímis ýmis önnur gjöld sem leggjast þyngst á ferðalög á landi þá erum við að tefla þessari grein og sjálfssprottinni byggðastefnu í hættu. Fátt hefur tekist jafn vel í byggðastefnu landsins eins og efling ferðaþjónustunnar. Ef þessi skattlagning verður raunin verður dýrara að aka hringveginn og þá munu ekki allir ferðamenn keyra alla leið til Djúpavogs, til Bíldudals, til Hvammstanga. Sumir munu einfaldlega snúa við. Sumir munu sleppa því að fara út fyrir gullna hringinn. Sumir munu reyna að komast hjá því að vera á bíl. Þetta mun allt hafa sína þýðingu fyrir þær nærsveitir.
Í skýrslunni sem ég nefndi áðan frá ferðaþjónustunni er bent á að kílómetragjald, eins og ríkisstjórnin boðar, geti þýtt um 11.000 kr. viðbótarkostnað fyrir þá sem aka hringveginn. Það er ekki lítið fyrir fjölskyldu á ferðalagi eða fyrir hóp ferðamanna sem þegar eru að greiða háar upphæðir fyrir flug, húsnæði, mat og afþreyingu. Þetta er bara beini kostnaðurinn. Samtök ferðaþjónustunnar vara við því að ofan á þetta bætist svo bakreikningar, óvissa og flókin innheimta sem geta skapað neikvæða ímynd fyrir Ísland sem áfangastað. Skyldum við ekki frekar vilja einfalda kerfið en að gera það óskilvirkara fyrir erlenda ferðamenn?
Virðulegi forseti. Kílómetragjaldið kemur ekki inn í tómarúmi. Ferðaþjónustan stendur nú þegar undir mörgum sértækum gjöldum og sköttum. Gistináttaskattur er áætlaður um 2,7 milljarðar kr. á þessu ári og fer í um 4 milljarða á næsta ári. Umhverfisgjöld og skuldbindingar vegna viðskiptakerfis með losunarheimildir nema um 4 milljörðum kr. Hafnargjöld skemmtiferðaskipa eru 4 milljarðar og verða enn hærri á næsta ári. Bílastæðagjöld og ýmis gjöld í þjóðgörðum og á ferðamannastöðum nálgast milljarð. Þessu til viðbótar koma ýmis sértæk gjöld á flug og varaflugvelli. Þegar litið er á heildarmyndina er niðurstaða skýrslu Samtaka ferðaþjónustunnar sú að frekari gjöld og skattar geta sett atvinnugreinina sjálfa í hættu, ekki bara rekstur einstakra fyrirtækja heldur sjálfan burðarásinn í atvinnustefnu landsins. Það á sérstaklega við nú þegar afkoman hefur þegar versnað milli ára.
Virðulegi forseti. Kílómetragjaldið sem ríkisstjórnin leggur til er ekki einhver einföld kerfisbreyting. Hún er heldur ekki arfleifð fyrri ríkisstjórnar. Að leggja þetta frumvarp fram er pólitísk ákvörðun um að þyngja enn frekar skattbyrði á m.a. stærstu útflutningsgrein þjóðarinnar, svo ekki sé minnst á öll heimili landsins og öll fyrirtæki landsins. Það er ákvörðun um að hækka kostnað við akstur um landið, sérstaklega fyrir þá sem ferðast á bílaleigubílum, og þannig draga úr möguleikum til að dreifa ferðamönnum betur um landið. Í stað þess að nýta ferðaþjónustuna til að skapa fleiri verðmæt störf og auka framleiðni er hætt við að þetta gjald verði hluti af þeirri hleðslu sem dregur úr vexti og fjárfestingu.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur aldrei verið á móti því að allir taki þátt í að greiða fyrir vegakerfið. Við studdum fyrstu skref orkuskipta í samgöngum og höfum lagt til lausnir sem tryggja tekjur til vegagerðar án þess að kæfa atvinnulífið. En við höfum líka sýnt að það er hægt að ná tekjum með hóflegum breytingum í núverandi kerfi eldsneytisgjalda og kolefnisgjalda í stað þess að setja upp þungt nýtt kílómetragjaldakerfi sem leggst sérstaklega þungt á ferðaþjónustu og landsbyggðina.
Virðulegi forseti. Spurningin sem við stöndum frammi fyrir er í raun mjög einföld: Viljum við vera land sem segir við ferðaþjónustuna, bílaleigurnar, litlu gistiheimilin, veitingastaðina og fyrirtækin á landsbyggðinni: Takk fyrir að hafa dregið okkur út úr langvinnum þrengingum, takk fyrir að hafa skapað störf og tekjur en nú ætlum við að skattleggja ykkur enn meira. Eða viljum við vera land sem segir: Við sjáum hvað þið hafið gert. Við ætlum að standa með ykkur, tryggja samkeppnishæfni ykkar og skapa fyrirsjáanlegt umhverfi til framtíðar. Munum að engin þjóð hefur skattlagt sig til vaxtar og velmegunar. Við byggjum ekki upp með því að leggja ný gjöld á lykilútflutningsgreinar. Við byggjum upp með því að skapa stöðugt umhverfi, skynsamlegt regluverk og skattkerfi sem hvetur til fjárfestinga, nýsköpunar og vinnu.
Virðulegi forseti. Afstaða mín og afstaða Sjálfstæðisflokksins er skýr. Við teljum að kílómetragjaldið sem hér er lagt til sé röng leið fyrir Ísland og við munum hafna því í heild. Það gengur gegn markmiðinu með dreifingu ferðamanna. Það gengur gegn byggðastefnu. Það gengur gegn atvinnustefnu sem á að byggja á auknum útflutningi og hærri framleiðni og það er ekki í takt við þá ábyrgð sem við berum gagnvart framtíðarlífskjörum í landinu. Ég hvet því þingheim til að staldra við og hafna þessari skattlagningu á fuglinn í fjörunni.