157. löggjafarþing — 45. fundur,  11. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[21:13]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur fyrir ræðuna. Mig langar að beina sjónum mínum að ummælum hæstv. fjármálaráðherra eftir fundinn með ferðaþjónustunni í dag. Ég hef gert það reyndar hér í öðru andsvari, út frá annarri nálgun þó, því nú er frétt á heimasíðu Ríkisútvarpsins og þar kemur fram, með leyfi forseta:

„Fjármála- og efnahagsráðherra telur að breyting á kílómetragjaldi ætti ekki að hafa bein áhrif á ferðaþjónustuna eða rekstur bifreiða. Forstjóri Bílaleigu Akureyrar segir breytinguna auka gjöld á bílaleigur um 7,5 milljarða.“

Nú hefur hv. þingmaður, og gerir kannski enn, ég þekki það ekki, staðið í rekstri í fjöldamörg ár. Það fyrirtæki hlýtur að hafa þurft að fá sín aðföng, koma sinni vöru á markað o.s.frv., þó að það sé kannski ekki ýkja langt frá framleiðslustað á stærstan hluta markaðarins í þessu tilfelli. Engu að síður hlýtur varan að hafa verið seld hringinn í kringum landið. Því gef ég mér svona fyrir fram áður en ég set spurninguna í loftið að hv. þingmaður þekki vel hvaða áhrif flutningskostnaður hefur á rekstur fyrirtækja, bæði að og frá, eins og sagt er, bæði aðflutning og að koma vöru á markað. En ég spyr af því að nú erum við aftur komin í svona yfirlýsingar og hv. þingmaður man eftir þessari umræðu að sjálfsögðu sem átti sér stað í vor og sumar þar sem við heyrðum sambærilegar fullyrðingar ítrekað, að það væri sem sagt búið að finna upp íslenska aðferð sem væri einhvern veginn á þá leið að það væri hægt að hækka skatta, jafnvel svo milljörðum næmi, en það hefði samt engin áhrif. Við í þeim flokkum sem skipa minni hlutann hér á þingi um þessar mundir drógum í efa og skildum ekki þessa hagfræði eða viðskiptafræði. En þessu var engu að síður haldið fram. Niðurstöðurnar eru reyndar byrjaðar að koma í ljós úr þeirri rökræðu. Fólk er byrjað að missa vinnuna og hagræðingin er hafin og hún mun halda áfram. Þess vegna langar mig að spyrja hv. þingmann: Hvað hefur breyst í hagfræðinni að hennar mati? Erum við aftur lenda í rökræðu við hæstv. ríkisstjórn og fulltrúa hennar um að skattlagning og skattahækkanir svo milljörðum nemi hafi bara engin áhrif á íslenskt atvinnulíf?