157. löggjafarþing — 45. fundur,  11. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[21:16]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurningu sem hann beinir til mín. Ég sat þennan fund ferðaþjónustunnar í morgun og ég hlustaði þar á fjármálaráðherra. Mér þótti málflutningur hans sæta furðu og hvernig hann talaði af ákveðnum léttleika um áhrif skattahækkana á atvinnulífið. Það er rétt sem hv. þingmaður segir að ég hef líklega staðið í fyrirtækjarekstri alla ævi þangað til ég tók sæti hér á Alþingi og það er fátt sem hefur meiri áhrif á rekstur fyrirtækja en afskipti ríkisins og ófyrirsjáanleiki sem ríkið skapar atvinnulífinu. Það eina sem í rauninni atvinnulífið þarf á að halda er fyrirsjáanleiki og að geta skipulagt sig inn í einhverja framtíð. Hæstv. fjármálaráðherra segir í viðtali við Ríkisútvarpið í dag orðrétt, með leyfi forseta: „Þannig að ég tel nú ekki að þessi ríkisstjórn hafi sýnt neitt annað en velvilja í garð ferðaþjónustunnar.“ En ég heyrði ekkert annað en miklar áhyggjuraddir á fundi ferðaþjónustunnar í morgun þar sem fólk hefur verulegar áhyggjur af því hvaða áhrif þessi gjaldabreyting hefur á ferðaþjónustuna, á bílaleigurnar og við vitum að bílaleigurnar eru ákveðinn grunnur fyrir því að ferðaþjónustan geti blómstrað hér í öllum sveitum landsins og ferðamenn geti komist leiðar sinnar.

Það er hætta á því að þetta muni hafa alvarlegar afleiðingar og já, það kom fram á fundinum morgun (Forseti hringir.) að aukin gjöld á bílaleigur eru áætluð 7.500 milljónir á næsta ári. Ef einhver ætlar að halda því fram, hvað þá fjármálaráðherra íslenska ríkisins, (Forseti hringir.) að þetta muni ekki hafa áhrif, þá hefur viðkomandi mjög rangt fyrir sér.