kílómetragjald á ökutæki.
Herra forseti. Ég þakka svarið. Það vill svo einkennilega til, herra forseti, að sú tala sem hv. þingmaður nefnir hér, 7,5 milljarðar og meiri hlutinn hefur ítrekað stært sig af því að hér sé um alveg stórkostlegt átak í samgöngumálum að ræða — sem sagt sá hluti sem núna er tekinn með í pakkann sem var haldið sér í síðustu samgönguáætlun en er núna inni í heildarpúllíunni, ólíkt því sem var þá, er u.þ.b. 7 milljarðar kr. sem fara til Betri samgangna, í samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Það er nú allur galdurinn í þeirri hækkun sem hittir svo ótrúlega á að er sama talan og bætt var við í veiðigjöldunum. Fyrir þá sem trúa á tilviljanir er hér um skemmtilegan samanburð að ræða, þetta eru alls staðar sömu tölurnar sem verið er að lofa aftur og aftur.
Aðeins um afleiddan kostnað. Við höfum talað um beinan kostnað, hvað þetta mun kosta beint í skatt og það liggur fyrir hvað hið opinbera ætlar sér að ná inn með þessu þó að það tali reyndar aldrei um kostnaðinn. Það er ekki eins og ríkisstjórnin sé að fara að ná 3,3 milljörðum í tekjur. Það er hellingsumstang og það er líka hellingsumstang og -kostnaður hjá þeim sem eiga að standa undir þessu, þ.e. fyrirtækjunum í landinu. Í umfjöllun Bílaleigu Akureyrar er talið að bara sá kostnaður sem lendir á því eina fyrirtæki við að halda utan um það að gerast núna innheimtumaður fyrir nýjan skatt ríkisins sé um 25 millj. kr. Ég spyr hv. þingmann: Er þetta eðlilegt? Þetta er ekki bara venjuleg skattahækkun. Það er beinlínis verið að færa fleiri verk til fyrirtækjanna þannig að ekki aðeins fá þau á sig hækkaðan skatt heldur fá þau einnig á sig kröfu um jafnvel heilt stöðugildi til að geta staðið í því að eltast við og innheimta þessi gjöld fyrir ríkið.