157. löggjafarþing — 45. fundur,  11. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[21:22]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Venjuleg skattahækkun — þetta er íþyngjandi skattahækkun. Þetta er umfram allt annað. Við erum líklega að stefna í að verða ein skattpíndasta þjóð í heimi og við ættum að líta okkur nær. Við ættum að gefa meira súrefni til atvinnulífsins. Hér nefnir hv. þingmaður áhrifin og kostnað vegna þessa. Nú boðar ríkisstjórnin það að kílómetragjald eigi að taka gildi eftir tvær vikur. Eftir tvær vikur þarf hvert einasta fyrirtæki sem er í þessum greinum, allar bílaleigur t.d., að breyta öllum sínum tölvukerfum, öllum. Þetta mun taka miklu meiri tíma en tvær vikur. Flækjustigið verður stórkostlegt. Kostnaðurinn verður stórkostlegur. Það er alveg klárt mál að þetta mun ekki fara neitt annað en á íbúa landsins og þá sem þurfa að kaupa þessa þjónustu. Þá ætla ég líka að fá að minna á það að nánast öll matvælaframleiðsla landsins á sér stað fyrir utan höfuðborgarsvæðið. Hér þarf að keyra mat um langan veg oft og tíðum á stærsta markað landsins, höfuðborgarsvæðið. Það koma til borgarinnar á hverjum einasta degi margir tugir bíla á dag með matvæli og ef einhver ætlar að halda því fram að þessi aukna skattheimta hér á akstur muni ekki fara út í verðlag matvæla þá er það mikil firra, virðulegi forseti. Það mun þýða að matvælaverð mun hækka vegna þess að flutningskostnaður mun hækka. Það mun ýta undir verðbólgu og það mun gera ríkisstjórninni enn erfiðara að berja niður blessaða vextina sem hún er búin að vera að reyna að berja niður allt þetta ár með misjöfnum árangri.