157. löggjafarþing — 45. fundur,  11. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[21:26]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurningu til mín. Við eigum það sameiginlegt, ég og hv. þingmaður, að vera þingmenn í víðfeðmasta kjördæmi landsins þar sem allir reiða sig á bíl til að geta komist á milli staða og sérstaklega þegar við þingmenn ætlum að sinna okkar kjördæmi þá eru kílómetrarnir fljótir að telja. Það verður dýrara fyrir okkur að sinna kjördæminu og það verður dýrara fyrir fólkið í kjördæminu okkar að sækja sér þjónustu. Það verður dýrara fyrir íbúa á Höfn í Hornafirði að koma suður o.s.frv. Ríkisstjórnin hefur talað mikið um að þau séu að móta atvinnustefnu og hæstv. forsætisráðherra hefur talað um að hér eigi að vera eitt allsherjarverðmætasköpunarhaust og þetta er líklega hluti af því. Ríkisstjórnin og forsætisráðherra hafa líka talað mikið um til að mynda að ferðaþjónustan sé ekki nógu arðbær atvinnugrein og að við þurfum að huga að því að efla hér arðbærari atvinnugreinar. Þessu deili ég nú ekki, sérstaklega ekki eftir fundinn í morgun, ferðaþjónustan er að skila gríðarlega miklu til samfélagsins eins og ég nefndi í ræðu minni áðan. En aftur á móti er það mikið áhyggjuefni að ferðaþjónustan líður kannski fyrir það að við þurfum að fullnýta þá fjárfestingu sem hún hefur lagt í hringinn í kringum landið. Það er ákveðið vandamál að margir fara ekki austur fyrir Jökulsárlón, ferðamenn fara varla svo langt, margir hverjir stoppa í Jökulsárlóni og margir fara ekki norður fyrir Holtavörðuheiði. Það skiptir öllu máli að við náum að dreifa ferðamönnum um landið, sérstaklega til þess að nýta þá fjárfestingu sem ferðaþjónustan hefur farið í. (Forseti hringir.) Og þetta mál er ekki liður í því að dreifa ferðamönnum um landið.